Vikan


Vikan - 21.03.1994, Side 26

Vikan - 21.03.1994, Side 26
UNGLINGAVANDAMAL Að Torfastöðum í Biskupstungum hafa þau Drífa Kristjáns- dóttir og Ólafur Einarsson rekið meðferðarheimili fyrir unglinga síðastliðin 11 ár. Torfastaðir eru í eigu ríkisins en áður en þau komu þang- að höfðu þau leigt aðstöðu I Fljótshlíðinni í 4 ár þar sem þau ráku sams konar heimili ásamt kunningjahjónum sín- um. Á Torfastöðum hefur íbúð- arhúsið verið endurnýjað töluvert auk þess sem (Dað hefur verið stækkað til þess að mæta þörfum starfsem- innar. Þar hefur stórt og myndarlegt fjárhús einnig verið endurbætt og hesthús- ið gert hið vistlegasta, bæði fyrir hrossin, sem þar standa yfir veturinn, og heimilisfólk, sem stundar hestamennsk- una af miklum áhuga og dugnaði. Þau Drífa og Ólafur hafa náð miklum árangri og varla kemur fyrir að þeir unglingar, sem frá þeim útskrifast, fari út af þeirri braut sem þau hafa beint þeim inn á með markvissu starfi sínu á Torfastöðum. Torfastaðaheimilið hefur getið sér góðan orðstír af þessum sökum og er ásókn í dvöl þar mjög mikil. Nýlega hlutu þau Drífa og Ólafur viðurkenningu úr Carítas- sjóðnum sem er á vegum kaþólsku kirkjunnar á (sandi. Blaðamaður Vikunnar brá sér austur yfir fjall einn fagr- an vetrardag þegar snjór lá yfir og hvergi sást í dökkan díl. Hann varð þess strax áskynja, þegar að Torfastöð- um var komið, hversu góður andi ríkir þar. Það var nefni- lega eins og að vera kominn inn á mannmargt sveita- heimili en ekki stofnun þar sem fram fer krefjandi með- ferð á þeim einstaklingum sem þar hafa vist um stund- ar sakir. ENDASTÖD - En hvers konar fólk er það sem þarna fær að njóta til- sagnar Drífu og Ólafs? Drífa: „Þessir krakkar eru gjarnan komnir á ákveðið skrið og yrðu áfengi, fíkni- efnum eða afbrotum að bráð ef ekki væri gripið í taumana nógu snemma. Þeir eru að komast á beinu brautina nið- ur á við. Krakkarnir eru á aldrinum 12-18 ára en flestir á bilinu 14-15 dveljast hér í eitt ár að minnsta kosti. Við höfum á tilfinningunni að aldurinn sé að færast neðar - hingað er sótt um vist fyrir krakka allt niður í 10-11 ára en slíku get- um við ekki sinnt.“ Ólafur: „Hingað koma unglingar sem hafa flosnað upp úr námi og eru oft orðnir þremur árum á eftir. Þeir hafa ekki beinlínis hætt í skóla heldur hætt að læra - þeir sitja kannski aftast í bekknum og sofa eða horfa út í loftið allan veturinn, læra ekki heima og eru alveg úti á þekju. Smám saman eykst vandinn og að endingu hætta þessir krakkar að mæta í skólann og fara að hegða sér óeðlilega. Oftast eru skjólstæðingar okkar illa staddir að þessu leyti. Við þurfum að sinna skól- anum miklu betur en gengur og gerist í hinu almenna skólakerfi. Krakkarnir þurfa að leggja meira á sig til að ná árangari." Drífa: „Við lítum á Torfa- staði sem endastöð skjól- stæðinga okkar í meðferðar- kerfinu. Þegar þeir koma hingað eru þeir kannski bún- ir að flækjast á milli aðila innan félagsmálastofnana og barnageðdeilda til dæm- is. Okkar hlutverk er að klára dæmið og leiða þá í gegnum þann vanda sem þeir eiga við að etja. Að því búnu geta unglingarnir farið heim til sín aftur eða eitthvað annað.“ 20 UM HVERT PLÁSS - Er þörfin mikil? „Við gætum hiklaust rekið fimm sinnum stærra heimili en þetta eða meira. Fyrir hvert pláss sem losnar fáum við upp í 20 umsóknir, það sýnir þörfina. Við erum með 15 ára reynslu af þessu rekstrarfyr- irkomulagi og njótum góðs af því. Reyndar er ég komin með 21 árs reynslu því að ég vann á Unglingaheimili ríkis- ins áður en við fórum út í þetta.“ Ólafur: „Við höfum náð mjög góðum árangri hér, við getum ekki neitað því. Þó er það svo að alltaf vill eitthvað misfarast og við náum ekki eins miklum árangri með ákveðna einstaklinga og við vildum sjálf. Oftar en ekki er það þá vegna þess að for- eldrarnir gefast upp.“ HEIMILI EN EKKI STOFNUN - Hvernig er starfsemin upp byggð? Drífa: „Við byggjum þetta upp sem fjölskylduheimili þar sem fram fer mjög mark- viss meðferð. Við búum hér ásamt 3 börnum okkar og tökum inn á okkur 6 að- komuunglinga. Síðan kemur hingað fólk til þess að að- stoða okkur við ýmislegt sem að starfinu lýtur. Ég er kennari að mennt og annað- ist sjálf kennsluna þangað til fyrir einu og hálfu ári síðan, þetta var orðið of yfirgrips- mikið. Nú höfum við hér kennara í föstu starfi, konu sem býr á næsta bæ. Við fá- um handmenntakennara tímabundið að auki og fáum aðstoð búskapinn. Það er mikill erill hérna og mikill tími fer í stjórnun. Hingað er mjög mikið hringt á hverjum degi og spurst meðal annars fyrir um vist- anir, börn sem eru hér fyrir og hvernig hlutirnir gætu litið út í framtíðinni. Það gefur auga leið að þetta er enda- laus eftirgangur ef hlutirnir eiga að vera í lagi. Við erum markvísst að láta krakkana takast á við hlutina." SAMSTARF OG FORELDRAMEDFERÐ Ólafur: „Hingað kemur eng- inn nema á þeim forsendum að vilja gera eitthvað sjálfur í málinu. Foreldrarnir verða líka að vera tilbúnir til sam- starfs og er gert að mæta hingað til spjalls og ráða- gerða í það minnsta einu sinni í mánuði. Foreldrasamstarfið er meðal annars byggt á því að við förum í gegnum feril unglingsins með þeim, sam- skipti þeirra við hann og reynum að yfirfæra það, sem við erum að gera hérna, til þeirra - eins og reglur, hvernig fólk talar saman, traust, nauðsyn þess að skafa af lyginni og svo fram- vegis." Drífa: „Gott samstarf við foreldra er ákaflega mikil- vægt vegna þess að við leggjum mikið upp úr því að okkur sé treyst. Þetta þarf að vera þannig að foreldrarnir komi hingað og sjái hvaða starf eigi sér stað, um hvað breytingarnar á börnum þeirra snúist. Börnin vilja oft væla svolítið og kvarta við foreldra sína yfir harðræði fyrstu vikurnar eða mánuð- ina. Það getur verið erfitt og átakamikið að breytast. Ef foreldrar fara að vantreysta okkur fá krakkarnir pata af því og geta farið að spila inn á það.“ - Flest fara heim til for- eldra sinna - en hvað með þá sem ekki eiga að vísu heimili að hverfa vegna bágra aðstæðna heimafyrir? Drífa: „Stundum þurfum við að koma hlutunum þann- ig fyrir að krakkarnir fari eitt- hvert annað en heim til sín, til dæmis í sambýlið að Sól- heimum 17 í Reykjavík elleg- ar á heimavist menntaskól- anna eða annarra skóla, sem oft hefur reynst heppi- leg lausn. Þá teljum við okk- ur hafa náð góðum árangri sem gæti eyðilagst undir vissum kringumstæðum. Sumir krakkanna hafa jafn- vel ekki að neinu að hverfa, þá er mikilvægt að við getum stýrt því hvað verður um þá þegar þeir eru reiðubúnir til að fara héðan og takast á við nýjar aðstæður. Foreldr- ar þurfa að geta stutt við börnin þegar þau koma heim, verða að vera þess megnugir og reiðubúnir til þess. Stundum eru vanda- mál foreldranna þess eðlis að okkur hefur ekki reynst unnt að fá neinu breytt - en oft og tíðum þurfum við að bjóða þeim upp á hjóna- og fjölskyldumeðferð meðan börnin þeirra eru hér.“ Ólafur: „Við hjálpum hjón- um mjög oft að leysa vanda- málin sín á milli - jafnvel að skilja. Fólk verður að geta not- ið þess að vera saman í stað þess að slást og rífast. Oft sér maður einkenni á börnunum sem eiga rætur að rekja til bágs sambands milli foreldr- anna innbyrðis - og svo auð- vitað foreldra og barna." - Kynferðislegt ofbeldi er hugtak sem mikið hefur ver- ið í umræðunni að undan- förnu. Verðið þið vör við að slíkt hafi verið hlutskipti ein- hverra skjólstæðinga ykkar? Drífa: „í síauknum mæli höfum við fengið hingað stúlkur sem hafa orðið fyrir kynferðislegu ofbeldi af hendi föður. Kannski er ástæðan í og með sú að um- ræðan í þjóðfélaginu er orð- in svo mikil um þetta mál- efni. Þess vegna kemur það frekar upp á yfirborðið." 26 VIKAN 3. TBL. 1994

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.