Vikan


Vikan - 21.03.1994, Blaðsíða 35

Vikan - 21.03.1994, Blaðsíða 35
0A § 700 TIS CLAUDIA SCHIFFER BOKUÐ AR FRAM I TIMAN TEXTI: SOLVEIG BALDURSDÓTTIR LJÓSM.: ÞORSTEINN ERLINGSSON Astæöan fyrir því aö Revlon fyrirtækið geröi sjö hundruð milljóna króna starfssamning viö Claudiu Schiffer fyrir skemmstu er einfaldlega sú að hún er aö þeirra mati best. Tískuhönnuöir og blaðamenn segja aö hún sé fegursta kona heims, aö hún sé eins og gyöja og Ijómi eins og sólin sjálf og einn lýsti henni þannig að hún nálgaðist fullkomnun af því hún væri svo „venjuleg". Aö margra mati hefur hún allt til aö bera sem falleg kona þarf aö hafa en aö sögn þeirra sem til þekkja hefur ekkert af þessu stigið henni til höfuös. Þessi 23 ára gamla stúlka hefur risið upp á stjörnuhim- ininn á undanförnum sex ár- um eöa frá því Dominique Galas, annar eigandi Metr- opolitan umboösskrifstofunn- ar í Þýskalandi, uppgötvaði hana á diskóteki í Dussel- dorf. Claudiu hefur löngum verið líkt við leikkonuna og kynbombuna Birgittu Bardot en báðar hafa þær útlit sem karlmenn taka andköf yfir og konur horfa á meö öfundara- ugum og hafa sem fyrirmynd um leið. FJÖLSKYLDAN SKIPTIR MESTU MÁLI Claudia er elst fjögurra syst- kina. Faðir hennar er lög- fræðingur en móðir hennar hefur alla tíö veriö heima- vinnandi og hugsað um heimili og börn. Hún er alin upp við ástríki og umhyggju foreldra sinna og er aö sögn þeirra sem til þekkja mjög heilsteypt manneskja. Ólíkt öðrum frægum fyrirsætum talar Claudia mikiö um hversu mikils viröi fjölskyld- an er henni. Hún skipulegg- ur vinnu sína þannig að hún geti verið meö þeim reglu- lega og talar viö móöur sína daglega í síma. Claudia seg- ir sjálf aö hennar helstu kost- ir séu sjálfsagi, skipulags- hæfileikar og að hún hafi báöa fætur á jörðunni þrátt fyrir mikla peninga og frægð. Hún segir í viðtali viö tíma- ritiö Hello að foreldrar sínir hafi kennt sér að vera sterk og þaö sé eins gott í þessum „bransa“ því fyrirsætum sé refsaö fyrir minnstu veik- leikamerki. Þær þurfi að vera áreiðanlegar, stundvísar og vita nákvæmlega til hvers er ætlast af þeim. „Ég læt pabba sjá um fjármálin mín og skipulegg vinnu mína þannig aö þegar ég tek aö mér verkefni geri ég mitt allra besta,“ segir hún. Claudia er ólofuð og blaöamenn um allan heim fylgjast grannt með ferðum hennar og væntanlegra ást- manna. Ööru hvoru sjást af henni myndir með karlmönn- um og hefur hún veriö orðuð viö menn eins og söngv- arann Peter Gabriel, David Copperfield og síðast en ekki síst Albert prins af Mónakó. Claudia flutti lög- heimili sitt til Mónakó í fyrra og það gaf sögunni um hana og Albert byr undir báöa vængi. Hún segir sjálf að samband þeirra sé aöeins vináttusamband. Sumir halda því fram aö þegar Albert taki við af föður sínum verði hann að hafa konu sér við hlið sem muni sóma sér vel í hlutverki Grace Kelly, móður hans, sem lést af slysförum fyrir all nokkru. Claudia þykir vera góður kostur en þótt þau hafi sést opinberlega saman neitar hún alfarið að það sé nokkuð á milli þeirra annað en vinátta. TILBÚIN ÍMYND Umboðsmaður Claudiu, Ali- ne Souliers, segir að Clau- dia sé allt annað og miklu meira en bara snoppufríð ung stúlka. „Hún er mjög greind enda kemst enginn þangað sem hún er kominn nema hafa vit í kollinum," seg- ir hún. „Þar fyrir utan er hún mjög hæfileikarík. Hún spilar á píanó og málar vatns- litamyndir og stundum olíumyndir þegar hún á frí á milli verk- efna en hún vill aldrei tala um það. Hún segist nota þetta áhugamál sitt sem aðferð til að slaka á en ekki af því hún ætli sér að gera eitthvað við verkin en ég er sannfærð um að hún á eftir að fá viðurkenn- ingu seinna meir.“ Það sem við sjáum af Clau- diu Schiffer er ímynd sem búið er að búa til af henni en Aline segir að auðvit- að sé sú mynd ekki sönn. Hún segir að Claudia eigi sérlega gott með að stilla sér upp fyrir myndatöku haft er eftir Karli Lager- feld, hönnuði Chanel tísku- hússins, að það sé ekki hægt að taka vonda mynd af Claudiu. 3. TBL. 1994 VIKAN 35 TISKA
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.