Vikan


Vikan - 21.03.1994, Page 36

Vikan - 21.03.1994, Page 36
Revlon getur meö stolti kynnt þessar tvær fyrirsætur, sem eru tákn snyrtivörutegundarinnar í dag. Claudia Schiffer og Cindy Crawford eru tvímælalaust eft- irsóttustu fyrirsætur heims. ustarfinu lýkur segist hún vilja reyna fyrir sér í leiklist. „Ég sæki leiklistartíma í París og New York en ég veit ekki enn hvort ég hef hæfileika í það. Ég er sannarlega ekki með fyrirfram mótaða hug- mynd um að ég vilji verða leikkona og ekkert annað. Ef það gengur ekki þá verður bara að hafa það.“ Aline segir að Claudia sé mjög jarðbund- in varðandi leiklistina og muni ekki taka að sér hlutverk fyrr en hún viti fyrir víst að hún valdi því. „Claudia er haldin fullkomnunaráráttu að vissu leyti og sem dæmi afþakkaði hún boð um að leika í kvik- mynd sem leikstjórinn og leik- arinn Sam Shepard bauð henni og hafði skrifað sér- staklega fyrir hana,“ segir Ali- ne. „Henni fannst hún ekki vera tilbúin." Það verður þess vegna mjög spennandi að fylgjast með því hvað verður um þessa ungu hæfileikaríku manneskju sem malar gull aðeins 23 ára gömul en er samt með báða fætur fast á jörðunni. BÓKUÐ ÁR FRAM í TÍMANN Claudia Schiffer er bókuð ár fram í tímann en að sögn Aline sér hún sjálf um að halda frá tíma sem hún notar til að slaka á með fjölskyldu sinni eða bara ein í yndis- legri íbúð sinni í Mónakó. Þegar Claudia er spurð að því hvað það sé sem heilli hana mest við fyrirsætu- heiminn segir hún: „Það er alveg frábært að fá tækifæri til að vinna með fólki eins og Karli Lagerfeld og Ijós- myndara eins og Steven Meisel og að fá tækifæri til að vinna fyrir fyrirtæki eins og Revlon. Svo fæ ég tækifæri til að kynn- ast óvenjulegu og vina- legu fólki eins Placido Domingo, Peter Ga- briel og Sting. Það gefur mér mjög mikið að kynnast svo mörgu og ólfku fólki.“ Stjarna Claudiu Schiffer skín skært núna og virðist ekki vera á neinni niðurleið. Starfsaldur fyrirsæta er ekki hár miðað við aðrar starfs greinar en ef til vill fáum við að sjá Claudiu á hvíta tjald- inu eftir nokkur ár ef hún ákveður sjálf að hún sé nógu góð. □ Þessa mynd tók Þor- steinn Erl- ingsson af Claudiu Schiffer er hann rakst á fyrirsætuna á gönguferö um Cannes. Myndirnar sem hann tók af henni og prýóa síóuna hér á undan sýna hana mæta til frumsýn- ingar stór- myndar á hátíöinni. „Claudia er í sérstöku ástar- sambandi við myndavélina," segir hann. „Það er sama hvernig hún stillir sér upp, myndin verður alltaf góð.“ Aline segir að galdurinn við þetta allt saman sé að Claudia hafi svo gaman af fyrirsætustarfinu. „Það geisl- ar af henni ánægjan þegar hún gengur eftir tískusýn- ingapöllunum eða situr fyrir í stúdíói," segir hún. „Hún er fullkomlega örugg en þekkir samt sín eigin takmörk." LANGAR AÐ VERÐA LEIKKONA Þegar Claudia er spurð að því hvað hún ætli að gera þegar fyrirsæt- MAGNUS KJARTANSSON FRH. AF BLS. 15 flytjendum, framleiðendum og upptökustjórum. Þetta er töfratæki fyrir alla sem hafa gaman af tónlist og eru svo- litlir grúskarar í sér. Ég er að vona að við getum unnið ís- lenska „katalóginn" upp á tölvutækt form og mér sýnist á viðræðum mínum við þessa aðila að það sé ekki mjög langt í að þetta komi hingað, einmitt þannig að það verði hægt að fletta ís- lensku tónlistinni upp alveg sérstaklega. Þá sé ég fyrir mér hljómplötuverslun við hliðina á tölvukössunum [ flughöfnum, umferðarmið- stöðvum og jafnvel spilasöl- um. JAKKAFATABÁTLAR ÚR FRYSTIHÚSAGEIR- ANUM VIKAN: Heldurðu að íslend- ingar treysti sér til að taka þátt I þessu tölvusamstarfi? MAGNÚS: Ég held að við séum allir hlynntir þessu, bæði flytjendur og höfundar, að þessi „menningarverð- mæti“ okkar (innan gæsa- lappa) komist nær markaðn- um. Þessi verðmæti okkar hafa verið óþarflega ein- angruð frá honum í langan tíma. Meðan stríð ríkir á milli hljómplötudreifenda og -selj- enda þá er það jafnvel happ- drætti fyrir útgefendur hvor- um megin þeir lenda við strikið í þessu litla landi. Það er til skammar að sú staða skuli vera uppi. Við þurfum líka að læra að markaðs- setja okkur erlendis. Ástralir eru mjög framarlega í mark- aðssetningu á sinni rokk- músík og bíómyndum. Þá þekkingu verðum við að ná okur í. Það þýðir ekkert að reyna fálmkennt að eyða peningum, vinnu og afli í að afla okkur einhverra mark- aða, fyrir eitthvað sem við höldum að við getum fram- leitt hér á landi í sama gæðastandard og aðrir. Það skipti miklu máli fyrir Ástral- íubúa að Johnny Hogan gerði bíómyndina Crocodile Dundee. Hann teiknaði meira að segja auglýsingaplakatið og þeir gerðu alla þá mynd sjálfir, nokkrir félagar - styrkjalaust og allt, og urðu múltímilljónamæringar í staðinn. Svo gerðu þeir Crocodile Dundee II. Þá var alveg greinilegt hvaðan pen- ingarnir komu því að þá voru myndin og söguþráðurinn stundum stoppaðir í fimm mínútur því að þeir urðu að troða inn einhverjum mynda- skotum af ástralskri náttúru, greinilega frá ástralska ferðamálaráðinu sem hafði fundið fyrir svo ofboðslega miklu stökki í túrisma í kjölfar fyrri myndarinnar. Um leið og ástralska hljómsveitin Men At Work skaust upp á toppinn í Ameríku og ástr- alskar bíómyndir komust á markað þar, þá merktu þeir auknar gjaldeyristekjur fyrir Ástralíu. Það varð tískustað- urinn að fara á. Fólk frá vest- urströnd Bandaríkjanna fór í sumarleyfi þangað og ástr- ölsk vara skaust upp í vin- sældum á vesturströndinni líka, samanber ullarvara og ýmislegt annað. Það er sorglegt hvernig staðið er að markaðsátaki íslendinga, hvort sem það er í kvik- myndum, tónlist, saltfiski, gellum eða refafóðri. Það verður aldrei gert sitt í hvoru lagi því að það fyrsta, sem þarf að gera, er að selja er landið. Síðan kemur varan. Eða eins og einhver sagði í gamla daga: „Það veit eng- inn hvað Mozart er búinn að selja mikið af súkkulaði." Og hvað ætli hann sé búinn að selja mikið af annarri austur- rískri framleiðslu? Fólk setur samasemmerki á milli þess að snillingur fæðist í ein- hverju landi og framleiðsl- unnar í landinu. Frakkar tóku eftir þessu fyrstir af öllum og fóru að markaðssetja ilm- vötn alveg á fullu. Og þegar þeir voru búnir að ná forystu í ilmvötnum þá kom ýmislegt annað á eftir. Það veit eng- inn hvað þeir hafa selt mikið af matvöru út um allan heim 36 VIKAN 3. TBL. 1994

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.