Vikan - 28.05.1998, Blaðsíða 4
le&ancti..
E
g þakka frábærar móttökur sem fyrsta
tölublað nýrrar Viku fékk hjá lesendum.
Viðtökurnar fóru langt fram úr björtustu von-
um, blaðið var uppselt hjá útgefanda á öðrum
degi frá útkomu!
Peir lesendur sem höfðu samband töluðu um að
það væri þörf fyrir jákvæða Viku og margir þökk-
uðu fyrir síðurnar „Nýr stíll” þar sem Kristbjörg
Ásta, 51 árs, var módel fyrir okkur og breytti um
útlit. Að þessu sinni höfum við fengið 33 ára,
þriggja barna móður, Sunnu Ólafsdóttur, til að
breyta um stíl og eins og sjá má á síðu 10 er hún
hin fallegasta fyrirsæta eftir slökun og hluta úr
degi á snyrtistofu. Sunna tekur undir með Vik-
unni að nútímakonur hafi mörg hlutverk og ann-
ríkið sé mikið en við megum ekki gleyma okkur
sjálfum. Hver og ein okkar verður að hugsa um
sjálfa sig og taka frá tíma til að slaka á.
Þeim lesendum, sem vilja taka þátt í síðunni
„Nýr stfll”, er velkomið að hafa samband við Vik-
una, enda byggist blaðið að miklu leyti á sambandi við lesendur. Er ekki eitthvað að
pirra þig? „Nöldur Vikunnar” gæti verið vettvangur til að fá útrás fyrir slíkt. Ef þú
lumar á góðri uppskrift þá veitum við glaðning fyrir uppskriftirnar sem birtast. Og er
ekki einhver í kringum þig sem á skilið „Rós Vikunnar”? Hvernig væri að koma við-
komandi á óvart og segja frá því í blaðinu? Símsvari blaðsins er alltaf opinn og mér er
líka sönn ánægja að ræða við lesendur. Ekki má gleyma að minnast á reynslusöguna á
blaðsíðu 14. Þar segir lesandi frá lífsreynslu sinni. Ef þú telur þig hafa upplifað eitt-
hvað og frásögn þín gæti orðið til þess að hjálpa öðrum þá skaltu hafa Vikuna í huga.
Sammannleg reynsla er stór hluti af efni þessa blaðs eins og síðurnar með heimilis-
lækninum og félagsráðgjafanum sanna.
Öll eigum við svo margt sameiginlegt, t.d. óskir um velgengni og hamingju barna
okkar en saga hvers og eins er alveg sérstök. Til dæmis dreymdi Hildi Rúnu Hauks-
dóttur um að litla, hæfileikaríka dóttir hennar ætti bjarta framtíð, en hana grunaði
ekki að hún yrði einn frægasti íslendingur síns tíma og yrði eftirsótt og umtöluð um
heim allan. Þetta er hins vegar raunin um Björk Guðmundsdóttur. Viðtalið við Hildi á
síðu 6 sýnir að lífið kemur á óvart og Vikan er full af áhugaverðu fólki og athyglisverð-
um sögum.
Stjórnarformaður
Magnús Hreggviðsson
Aðalritstjóri
Steinar J. Lúðvíksson
Sími: 515 5515
Framkvæmdarstjóri
Halldóra Viktorsdóttir
Sími: 515 5512
Ritstjóri
Sigriður Arnardóttir
Sími: 515 5582
Vikan@frodi.is
Ritstjóraf ulltrúi
Anna Kristine Magnúsdóttir
Sími: 515 5637
Anna@frodi.is
Blaðamaður
Þórunn Stefánsdóttir
Sími: 515 5653
Thorunn@frodi.is
Auglýsingastjóri
Björg Þórðardóttir
Sími: 515 5628
Vikanaugl@frodi.is
Ljósmyndarar
Bragi Þór Jósefsson
Gísli Egill Hrafnsson
Sigurjón Ragnar Sigurjónsson
Gunnar Gunnarsson
Hreinn Hreinsson
Grafískir hönnuðir
Ivan Burkni Ivansson
Ómar Örn Sigurðsson
Taktu þér tíma og njóttu blaðsins því Vikan bregður birtu á lífið.
Sigríður Arnardóttir.
Anna Kristine
Magnúsdóttir
ritstjórafulltrúi
Þórunn
Stefánsdóttir
blaðamaður
Ómar Örn
Sigurðsson.
útlitsteiknari
Björg
Þórðardóttir
auglýsingastjóri
Verð í lausasölu
Kr. 399,-.
Verð í áskrift
Kr. 329,-. Pr eintak
Ef greitt er með greiðslukorti
Kr. 297,-. Pr eintak
Unnið í Prentsmiðjunni Odda
hf.
Öll réttindi áskilin varðandi efni
og myndir
Símsvari Vikunnar
S: 515 5690
Tekið er við upplýsingum og
hugmyndum um efni allan
sólarhringinn.
Vinsamlegast látið nafn og
símanúmer fylgja erindinu.