Vikan - 28.05.1998, Blaðsíða 46
Á LÆKNASTOFUNNI
ÞORSTEINN NJÁLSSON
HEIMILISLÆKNIR
Mig langar til aö
segja ykkurfrá
vikunni minni
á stofunni. Það er mikil
fjölbreytni á stofu hjá heim-
ilislœkni get ég sagt ykkur.
En byrjum ná.
Mánudagur
Það var venju fremur mikið
að gera hjá mér, því ritarinn
minn var veikur og þurfti ég
því að taka niður lyfjapant-
anir og annað í síma sem hún
hefur gert fyrir mig. Ég opn-
aði stofuna því heldur seint
og ég varð að biðja mitt góða
fólk afsökunar á að vera
seinn fyrir. Jóhannes var
fyrstur á stofunni. Hann er á
sjötugsaldri. Við hittumst
fyrst fyrir 8 mánuðum, hann
var slappur og þreyttur, ekk-
ert hrifinn af því að koma til
læknis. Náðum þó fljótt sam-
an. Hann greindist með
hækkaðan sykur, þ.e. sykur-
sýki. Það sem hentaði hon-
um var að fá skýrar upplýs-
ingar og geta stjórnað þessu
sjálfur. Við gengumst í málið
og gengur allt vel í dag.
Hann mælir blóðsykurinn
reglulega sjálfur, passar
mataræðið og blóðsykurinn.
Hann sýndi mér mælingarn-
ar. Við vorum báðir ánægðir
með árangurinn.
Þriðjudaqur
Árný kom eftir hádegið.
Henni líður ekki alltaf vel.
Skildi við manninn fyrir
nokkrum árum og kynntist
nýjum. Sjálfsálit hennar er
ekki gott. Nýi maðurinn er
gull af manni og henni finnst
hún ekki eiga svo gott skilið.
Síðan flækir málið að hann
er lítillega eldri og á börn af
fyrra hjónabandi með til-
heyrandi flækju. Við ræðum
málin, hún er í reglulegri dá-
leiðslumeðferð, sem hefur
gjörbreytt sjálfsálitinu. Ætlar
að skipta um umhverfi í
sumar.
Miðvikudaaur
Magnea er rétt rúmlega
fimmtug, en lítur út eins og
35 ára. Utitekin og hress.
Hún haltrar, greinilega með
verki í hægra hné. Við skoð-
un kemur í ljós vökvi í hnénu
og verkir á hnénu. Líkast til
liðþófinn í hnénu sem er að
láta í ljós einkenni. Lið-
þófaráverkar eru algengir
hjá íþróttafólki, sérstaklega
skíða- og boltafólki. Hún var
í handboltanum hér á árum
áður og rifjaði upp að hnéð
hefði valdið henni erfiðleik-
um þá. Oftast þarf bara að
tappa vökvanum af hnénu
og gefa bólgueyðandi lyf í
stuttan tíma til að þetta lag-
ist, en stundum eru einkenni
þrálát og er þá mælt með því
að hnjáliðurinn verði spegl-
aður. Dreg 15 ml af liðvökva
úr hnénu og henni líður strax
betur. Fær með sér lyfseðil á
bólgueyðandi og verkjastill-
andi lyf.
Fimmtudaaur
Bjarni er 18 mánaða, hann
fékk eyrnabólgu fyrir viku
síðan. Settur á lyf af barna-
lækni í Reykjavík. Við skoð-
un í dag er engin sýking en
vökvi í báðum eyrum. Sigga,
mamma hans segir hann ekki
vera pirraðan lengur. Nú er
rétt að bíða í 3-4 vikur og líta
síðan á hann aftur og sjá
hvað mikið er eftir af vökv-
anum. Ég vara Siggu við því
að hann geti fengið eyrna-
bólgu aftur ofan í þennan
vökva og því sé rétt að eiga
verkjastíla heima. Flest börn
jafna sig á nokkrum vikum
eftir eyrnabólgur og aðeins
fá þurfa rör og aðrar aðgerð-
ir.
Föstudagur
Síminn hringir, helgin
framundan og fólk að leggj-
ast í ferðalög og þá þurfa all-
ir að vera með lyfin sín. Ung-
barnaskoðun er í dag, það er
alltaf skemmtilegur tími.
Börn eru mjög sérstakt fólk.
Margt ber á góma í svona
tímum og miklum upplýsing-
um miðlað. Sérstaklega
þægilegt að hafa samspil
læknis, hjúkrunarfræðings og
foreldra. Mér verður oft
hugsað til þess hvar maður
stæði ef maður ætti ekki
börn sjálfur, því ekki er nú
allt í bókum sem spurt er um
í ungbarnaeftirlitinu. Eftir-
miðdagurinn fór síðan í for-
varnarstörf, tóbaksvarnar-
nefnd, sem ég er í fyrirsvari
fyrir og ræddi árangur af síð-
asta ári. Sölutölur tóbaks
hafa aldrei verið lægri á ís-
landi. Húrra fyrir íslending-
um!