Vikan - 28.05.1998, Blaðsíða 30
Gott ráð til að eyða lykt úr ísskápum er
að setj a skál með matarsóda í skápinn. Hún
gagnast sem lyktareyðir í heilan mánuð...
Til að fjarlægja rákir eftir te og kaffi í
postulínsbollum skuluð þið nudda boll-
ana með rökum klút, sem dýft hefur ver-
ið í matarsóda...
Til að hreinsa uppþvottavélar er gott ráð
að blanda saman ediki og sítrónusafa og
setja vélina í gang (ekki með leirtaui!).
Sápuleifar hverfa...
Settu skál
með ediki
inn í her-
bergi sem
reykt hefur
verið í. Síga-
rettulyktin hverf-
ur...
Holl húsráð:
Umsjón: Anna Kristine Magnúsdóttir
Teikningar: Guðný Svava Strandberg
Þegarþú sýður kál, er gott ráð að setja
nokkra dropa af sítrónusafa í vatn-
ið. Bragðið helst en lyktin berst ekki um...
Ef þú vilt ekki anga af hvítlauk skaltu
tyggja steinselju eða kaffibaun...
Til að hreinsa viðbrenndar pönnur er
ágætt ráð að setja matarsóda og smá vatn.
Látið standa í nokkrar klukkustundir...
Ef þið viljið spara þvottaduftið í upp-
þvottavélina er gott ráð að setja nokkrar
matskeiðar af ediki í vélina. Edikið leys-
ir upp fitu...
Dragið ísskápinn fram minnst
ári og hreinsið undan honum.
suguna til að ná ryki, sem
fyrir í mótornum.
lengur...
Sinnep eyðir lauklykt
brettum. Nuddið vel -
%
Ef þú ert að elda eitthvao með
sterkri lykt, sem þú vijt
að berist um húsið, skaltu
hafa opna ediksflösku
við hliðina á elda-
vélinni...
RannVéig Sigurgeirsdóttir í
Reykjavík bauð gestum fyrst
upp á þennan gómsæta ban-
anarétt fyrir nokkrum árum og
komst strax að raun um að það
borgaði sig að eiga ljósrit af
uppskriftinni, því gestir sögðu
alltaf: „Get ég fengið upp-
skriftina?”
BANANAGRATÍN:
300-400 g skinka, skorin í bita
1 búnt söxuð steinselja
4 bananar
3-4 dl rjómi
pipar
_ tsk karrí
_ tsk paprika
100 g parmesan ostur
örlítið smjör eða smjörlíki
(má sleppa)
Skinku og steinselju blandað
saman og dreift yfir botninn á
smurðu eldföstu móti. Banan-
ar skornir eftir endilöngu og
lagðir ofan áskinkunaogstein-
seljuna. Þá er rjóma, kryddi og
helmingi ostsins blandað sam-
an og hellt yfir bananana. Loks
er afgangnum af ostinum,
ásamt smjöri/smjörlíki ef vill,
dreift yfir.
Bakað í miðjum ofni við 250
gráður á C í u.þ.b. 15 mín.
Borið fram með nýju brauði
eða hrísgrjónum, eða eitt sér
sem smáréttur.
Hvernig væri að gauka gómsætri
uppskrift að okkur á Vikunni og
við sendum glaðning frá Nóa
Síríus um hæl, sem þakklætisvott
fyrir þær uppskriftir sem birtast.
Best væri ef mynd af réttinum
fylgdi með og nafnið á þeim sem á
að fá glaðninginn.
„Get ég fengið uppskriftina? Vik-
an, Seljavegi 2,101 Reykjavík“.