Vikan - 28.05.1998, Blaðsíða 23
Magnús Hreggviðsson, stjórnarformaður Fróða og útgefandi Vikunn-
ar, Björg Þórðardóttir, auglýsingastjóri, David Pitt heildsali, Svala
Lárusdóttir, eiginkona hans, og Erla Haraldsdóttir, eiginkona Magn-
úsar. Skyldu þau hafa rætt viðskipti?
Blaðið lifnaði við í orðsins fyllstu merkingu! Hér eru
þau Sigrún Kaya Eyfjörð og Guðni Freyr Sigurðsson í
Skerjaveri ásamt tékkneska tónlistarfólkinu Vieru og
Pavel Manásek. Viera hreifst svo af söng Guðna að
hún bauð honum umsvifalaust í kór Seltjarnarnes-
kirkju!
Þorsteinn Njálsson heimilislæknir svarar
bréfum frá lesendum Vikunnar. Hér er hann
með eiginkonu sinni, Ólöfu Pétursdóttur,
hjúkrunarfræðingi og listakonu.
Kári Jónasson, fréttastjóri Ríkisútvarps-
ins, ásamt Björgu auglýsingastjóra og
eiginkonu sinni, Ragnhildi Valdimars-
dóttur.
Sjónvarpskonan, Áslaug Dóra Eyj-
ólfsdóttir, og yngsta kynslóðin í
veislunni, sonurinn Jón Nordal.
Viðskipti og andans mál voru rædd í útgáfuteit-
inu. Þórólfur Árnason, framkvæmdastjóri hins
nýja fjarsímafyrirtækis, Tal hf., og séra Anna Sig-
ríður Pálsdóttir, prestur í Grafarvogskirkju, fóru
á flug.
Herramenn á öllum aldri mættu í
veisluna. Kristján Franklín Magnús
leikari og dr. Orn Erlendsson hjá
Triton.
Ritstjórinn, Sigríður Arnardóttir, hélt
ræðu og kynnti til leiks þá viðmælend-
ur Vikunnar sem létu Ijós sitt skína í
veislunni.