Vikan - 28.05.1998, Page 33
Ráð til að halda heimilisfriðinn
VIRÐUM EINKALÍF BAR
Meðan börnin okkar eru lítil eru þau háð okkur á allan hátt. Það er því stundum
erfitt að átta sig á að þau eldast, verða sjálfstæðir einstaklingar sem eru færir um
að sjá um sig sjálfir og eiga rétt á einkalífi. Sem foreldrar verðum við að hvetja
börnin og unglingana til að deila með okkur gleði og sorgum, en einnig að vera
þess meðvituð að þau þurfa svigrúm, ekki síður en við fullorðna fólkið.
Hér koma nokkur ráð til
að halda heimilisfriðinn
Lestu aldrei dagbók
barnsins þíns. Það getur
verið freistandi, en dagbók
er afar persónulegur hlutur
þar sem börn og unglingar
skrifa sínar leyndustu
hugsanir - sem við eigum
ekkert tilkall til. Ef þú lest
óvart eitthvað í dagbókinni,
hafðu þá hugfast að það
sem þar stendur eru oft
dagdraumar barnsins, sem
ekki eiga sér neina stoð í
raunveruleikanum.
Þegar vinir koma með
börnin sín í heimsókn er
ekki sjálfgefið að þú bjóðir
þeim í barnaherbergið. Það
er yfirráðasvæði barnsins og
það á sjálft að ráða hverjum
er boðið þangað inn. Biddu
barnið þitt að lána
gestunum leikföng sem
hægt er að leika sér með
annars staðar í íbúðinni.
Ekki æða inn á klósett
þegar barnið er að nota
það. Þú verður að virða
lokaðar dyr, jafnvel þótt þér
finnist það hafa verið í gær
sem þú þurftir að þurrka
lítinn bossa. Það sama á við
um baðherbergið. Börn eiga
rétt á því að baða sig í
einrúmi. Hitt er annað mál
að það er leyfilegt að setja
unglingnum tímamörk,
banka á dyrnar þegar hinir í
fjölskyldunni eru orðnir
óþolinmóðir að komast að.
Bankaðu áður en þú ferð
inn í barnaherbergið. Ef þú
gerir það að reglu strax
eflir það sjálfsvirðingu
barnsins og hvetur það til
að sýna þér sömu
tillitssemi.
Eldri börn líta á
herbergið sitt sem heilagt
vé og er alls ekki vel við
þegar þú mætir til að þrífa
og taka til. Láttu barnið
koma sjálft með óhreinan
fatnað fram í þvottahús og
láttu vita hvenær þú ætlar
að þrífa. Gefðu því tækifæri
til að taka til og fela það
sem þú mátt ekki sjá. Annar
kostur er auðvitað að láta
barnið þrífa herbergið sjálft.
Ekki hlusta þegar barnið
talar í símann. Æskilegt er
að staðsetja símann þar
sem allir geta talað í
einrúmi.
Ekki bregðast trúnaði
barnsins með því að tala um
persónuleg málefni þess við
aðra, sérstaklega að því
viðstöddu. Það gerir þig að
lélegum trúnaðarmanni.
Ekki ræða líkamlegan
þroska barnsins eða gera
grín að einhverju sem það
hefur trúað þér fyrir.
EN MUNDU að engin
regla er án undantekninga.
Ef þig grunar að barnið þitt
sé í einhvers konar hættu
eða viðriðið eitthvað
ólöglegt getur þú neyðst til
að brjóta allar þessar
reglur- hlutverk þitt sem
verndari barnsins gengur
fyrir.