Vikan - 28.05.1998, Blaðsíða 39
I
I
I
I
I
I
Gerir sig fína meðan aðrir sofa
X/iAtal' Anna l^ric + ino Manm'icrlnttii- I iÁcmnnrlir /^imnar ^imnarccnn
Viðtal: Anna Kristine Magnúsdóttir Ljósmyndir: Gunnar
Klukkan er
hefur tekið
Borgin var í
fastasvefni og sama
máli gegndi um
alla á heimili írisar
Dungal flugfreyju.
Það var laugar-
dagsmorgunn og
klukkan var sex.
Hánótt hjá flestum
- en ekki flug-
freyjunni, sem er
jafnvel vön að
vakna miklu fyrr.
Hún er búin að fara í sturtu
og er byrjuð á andlits-
förðuninni:
"Nei, mér finnst ekki erfitt að
vakna þótt allir aðrir á heimilinu
séu ífastasvefni," segiríris. "Mér
finnst það meira að segja
stundum notalegt að vera ein á
ferðinni í bflnum þegar borgin
sefur öll, en neita því þó ekki að
auðveldara er að vakna í birtu
en dimmu. Eg vakna
klukkustund áður en ég á að
rúmlega sex að morgni og fris
til við morgunverkin...
mæta, oftast klukkan fimm, en
þennan morgun var mæting í
rútuna rétt fyrir klukkan sjö. Ég
læt vekjaraklukkuna vekja mig
og á alls ekki erfitt með að vakna.
Það má segja að það komist upp
í vana að vakna svona snemma,"
segir íris, en hún hefur verið
flugfreyja í 27 ár.
Hún segist nota andlitsfarða,
augnháralit og varalit og blása á
sér hárið: "Hér áður fyrr var
okkur boðið upp á námskeið í
og hér er hún mætt, galvösk og
gullfalleg um borð í Flugleiðavél!
snyrtingu hjá Heiðari Jónssyni
og öðru góðu fólki og þá lærðum
við undirstöðuatriðin. Þetta
kemur svo með æfingunni og ég
ver svona 15 mínútum í
andlitsförðunina. Sturtuferð,
hárþvottur og blástur tekur
svona hálftíma í allt og þá á ég
eftir 15 mínútur til að fá mér
Gunnarsson
tebolla og brauðsneið."
íris hefur aldrei sofið yfir sig
og aldrei þurft að kalla út
samdægurs aðra flugfreyju
vegna veikinda. Hún segist hafa
haft meiri áhyggjur af útliti sínu
þegar hún var að byrja sem
flugfreyja heldur en núna "þótt
það ætti kannski að vera alveg
öfugt!"
Kvöldinu fyrir þetta flug varði
íris heima hjá sér, enda segir hún
nánast vonlaust fyrir flugfreyjur
að sækja skemmtistaði eða
veislur kvöldið fyrir flug: "Við
megum að minnsta kosti ekki
koma heim seinna en klukkan
ellefu. Ég á misj afnlega gott með
svefn, stundum bylti ég mér hálf a
nóttina en ég þarf almennt ekki
mikinn svefn. Þótt maður mæti
þreyttur um borð í vélina er sú
þreyta fljót að gleymast, því
vinnan er skemmtileg, nóg að
gera og mikið af fólki í kringum
mann."
—
Rós Vikunnar fær að þessu sinni
Hrafnhildur Björgvinsdóttir,
fertug móðir í Grindavík. Son-
ur Hrafnhildar, Hafliði, fyrirfór sér og
Hrafnhildur hefur ekki lokað sig af ein
með sorg sína heldur unnið ötullega að
því að rífa upp félagsstarf ungs fólks í
Grindavík, eins og lesa mátti um í Séð
og Heyrt 12. maí. Hugrekki Hrafnhild-
ar er virðingarvert því hún deilir sorg
sinni með öðrum í þeirri von og trú að
Rós Vikunnar
Þekkirðu einhvern sem á skilið að fá rós Vikunnar? Ef svo er,
hafðu þá samband við „Rós Vikunnar, Seljavegi 2,101 Reykja-
vík“ og segðu okkur hvers vegna. Einhver heppinn verður fyrir
valinu og fær sendan glæsilegan rósavönd um hæl.
HfWftAM
N
"N
hún láti gott af sér leiða. Það eru Is-
lenskir blómaframleiðendur sem senda
Hrafnhildi Björgvinsdóttur tuttugu,
fallegar Kardinál rósir og óskum við
henni og fjölskyldu hennar velfarnað-
ar.
Rós Vikunnar fær að þessu sinni:
Hrafnhildur Björgvinsdóttir
Glæsivöllum 8