Vikan


Vikan - 28.05.1998, Síða 53

Vikan - 28.05.1998, Síða 53
um þar sem kúnnarnir fái oft hugmyndir þaðan að klipp- ingum og greiðslum. Enn- fremur verði þau að lesa tímarit, bæði innlend og er- lend, því þaðan koma oft vinsælustu klippingarnar. Svavar Örn tekur undir þetta og bætir við: "í þessum bransa telst það nánast lög- brot að missa af Óskarsverð- launaafhendingunni!!" Þau hafa öll lent í því að vera beðin um að klippa eftir stjörnu sem þau höfðu ekki hugmynd um hver var: Böddi: "Já, það hefur gerst tvisvar eða þrisvar. í eitt skiptið var beðið um klipp- inguna á Rachel (Jennifer Aniston) í Friends, og ég hafði ekki hugmynd um hvaða manneskju stelpan var að tala! Hún hefði alveg eins getað beðið um klippinguna á Guði! Þá var nýbyrjað að sýna þættina hér og Rachel æðið var ekki byrjað úti í Bandaríkjunum. Til að bjarga þessu ákváðum við að skoða tískublöð á stofunni til að finna þá klippingu sem hún vildi og það tókst að lokum. Mjög flott klipping sem fór stelpunni vel. Það er mjög óþægilegt þegar þetta gerist því yfirleitt kannast maður eitthvað við stjörnuna sem um ræðir! Ég er búinn að kíkja á Friends síðan!!" Svavar Örn: "Fyrir tveimur árum var ég beðinn um að klippa konu eins og Jane (Josie Bissett) í Melrose Place. Ég varð að gjöra svo vel og kynna mér hvernig Jane leit út sem og hárið á henni. Það var alveg stutt - mjög flott. Svo var ég aftur beðinn um Jane síðar og ég var að fara að klippa mann- eskjuna stutt þegar það kom á daginn að Jane var komin með miklu síðara hár!! Það er því eins gott að fylgjast vel með sápunum! Nema kannski Glæstum vonum og oft á þeim við sjáum eitt- hvað nýtt við prófa." Þau minna er hér með klippingu leikkonunnar Winona Ryder en sú klipping er einnig mjög vinsæl um þessar mundir. Leiðarljósi. Ég efast um að greiðslurnar þar eigi eftir að slá í gegn.J" Dagmar: "Fyrst þegar ég var beðin um George Clooney klippinguna hafði ég ekki hug- mynd um hver maðurinn var, hvemig sem ég fór nú að því! En, sem betur fer, erauð- v e I t að lýsa þeirri klipp- ingu fyrir manni svo strákurinn gekk út með þá klippingu sem hann vildi þrátt íyrir van- þekkingu mína á Bráðavakt inni!" Veljum við klippingar fræga fólksins af því um er að ræða eft irlætisleikarann eða erum við bara að spá í hárið? Svavar Örn: "Ég held að það sé bara hár- ið, ekki endilega hver sé með klippinguna. Fólk heillast af línunni og sér hvað þessi klipping get- ur gert fyrir það. Svo er það vinna okkar sem fagmanna að reikna út týpuna og hárgerðina og hvað við getum gert til að ná þeim stíl sem fólk- ið sækist eftir. Það er mjög þægilegt að hafa þessar stjörnur til hlið- sjónar ef fólk biður um einhverja ákveðna klippingu og til að skýra frekar getur maður sagt: eins og..1' Böddi: "Stjörnurnar koma með nýjar línur og þora að vera öðruvísi. Þess vegna eru þær oft brautryðjendur í hártísku sem og öðru. Það er Dagmar Agnarsdóttir fullkomnar greiðsluna með smá hárlakki! Já, okkur líka á að það sé ekki bara klippingin sem gerir hárið á ákveðinni stjörnu flott, heldur sé þetta fólk með ofsalega heilbrigt og gott hár. Sharon Stone, Meg Ryan, Leonardo DiCaprio - þau eru öll með fallegt hár sem þau hirða vel og svo sjá hárgreiðslumeistararnir um afganginn! 53

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.