Vikan - 15.03.1999, Blaðsíða 2
Texti: Steingerður Steinarsdóttir
Myndir: Björn Blöndal
Forsíðustúlkan
Nær fram
Íví besta í
verri konu
Það er Helga Sæunn Árnadóttir, förðun-
arfræðingur og sölumaður No Name
snyrtivara sem skreytir forsíðu Vikunnar
í gervi Marilyn Monroe. Helga er 27 ára
og lauk prófi frá förðunarskóla Línu Rut-
ar fyrir sjö árum og hefur starfað fyrir
No Name í tvö ár. Hún er einnig nýbyrj-
uð að kenna Ijósmyndaförðun við förð-
unarskóla No Name. Hún segir alla förð-
unarfræðinga skoða mikið förðun fyrri
tíma.
Við leitum mikið í
fortíðina, líkt og
tíðkast í tískuiðnað-
inum almennt. Förðunarstfll
kemur upp aftur og aftur,
við tileinkum okkur það
gamla og útfærum það á ný-
stárlegan hátt.“
En hefur Helga Sœunn
alltaf haft áhuga áförðun?
„Já, alveg frá því að ég
var barn. Þegar ég var ung-
lingur málaði ég mig mjög
mikið en fjórtán, fimmtán
ára ákvað ég að læra hvern-
ig ætti að fara með snyrti-
vörur. Ég fór utan og var í
eitt ár en þegar ég kom til
baka ákvað ég að hella mér
út í námið. Áhuginn hefur
síst minnkað eftir að ég fór
að vinna við þetta og nú er
að fara af stað kennsla í
leikhús- og kvikmyndaförð-
un í No Name skólanum og
ég mun aðstoða Birtu
Björnsdóttur við kennslu í
tímabilaförðun. Ég hlakka
mikið til að taka þátt í
þessu verkefni því þar verð-
ur farið í hvernig eigi að
skapa persónur, týpur og
búa til „special effects“ sem
kannski má bara kalla
brögð á íslensku.“
Helga segir hugmyndina
að gervi hennar á forsíð-
unni hafa fæðst þegar verið
var að taka myndir fyrir
almanak No Name. Venju-
lega hafi almanakið eitt-
hvert þema og að þessu
sinni hafi verið ákveðið að
sýna förðun eins og hún
tíðkaðist á mismunandi
tímabilum.
„Marilyn er frá sjötta ára-
tugnum, önnur stúlka var
I förðuð eins og algengt var á
I millistríðsárunum og enn
I ein var frönsk maddama frá
I í kringum 1770,“ segir
I Helga Sæunn.
I En hvers vegna valdi liún
Marilyn Monroe, er hún í
sérstöku uppáhaldx?
„Þetta var auðvitað mjög
falleg og einstaklega kyn-
þokkafull kona. Kannski
svolítið væmin en fyrst og
fremst var skemmtileet að
prófa að bregða sér í gervi
annarrar manneskju.“
Eru aðrar konur sarn-
mála, biðja þœr Helgu Sœ-
unni ef til vill um að gera
þœr í útliti eins og ein-
hverja tiltekna kvikmynda-
stjörnu?
„Nei, þær biðja ekki um
það í dag. Fyrst og fremst
biðja þær um hefðbundna
förðun. Flestar konur, sem
ekki eru vanar að mála sig
mikið, yrðu bara hræddar ef
við förðuðum þær líkt og
gert er fyrir myndatökur
eins og þessa. Við reynum
fyrst og fremst að draga
fram það besta í útliti
hverrar konu.“
En hvað er það semfyrst
ogfremst einkennir förðun
eins og Marilyn Monroe
notaði?
„Það eru fölsku augna-
hárin, ekki þessi þéttu held-
ur svona smávængir út til
hliðanna. Lítil augnmálning,
augnlokið er málað ljóst og
svokölluð sökkullína, sem
er línan alveg upp við augn-
beinið, er skyggð með ljós-
brúnum litum. Eyeliner er
dregin langt út fyrir augn-
lokið til að skapa þetta
seiðandi augnaráð og svo
auðvitað rauði varaliturinn
sem hún notaði og fer
aldrei úr tísku.“
Hvað er þá helst í tísku
núna?
„Það sem kallað er
„smokie look“ Fyrst er dreg-
in lína með svörtum blýanti
yfir augnhvarmana og síðan
er dökkur augnskuggi settur
yfir allt augnlokið og undir
augun. Þá er notaður svartur
augnblýantur og hann
„maskaður út“ við gagnaug-
að. Bleikt er líka vinsælt
núna og það er mjög smart
sé það ekki of mikið.
Margar konur hafa reynt
að líkja eftir útliti gyðjunn-
ar Marilyn Monroe og það
verður að viðurkenna að
þeim hefur tekist misjafn-
lega vel upp. Helga Sæunn
er glæsileg og sómir sér vel í
hlutverkinu.
2