Vikan


Vikan - 15.03.1999, Blaðsíða 4

Vikan - 15.03.1999, Blaðsíða 4
Kceri lesandi... „Þvígleymi ég aldrei“ - 50.000 króna verolaun fyrir bestu frásögnina Y Yefurðu ekki lent' einhveríu ótrúlegu? Einhverju svo sérstöku að l—■# þú gleymir því aldrei en gœtir hugsað þér að segja frá? Ef svo er M J.. þá er samkeppnin „Því gleymi ég aldrei“ kannski rétti vettvangur- inn fyrir frásögn þína. Og það eru vegleg verðlaun i boði! Eins og ég greindi frá í síðasta ritstjórapistli verða ýmsar nýjungar í blaðinu nú á vordögum þar sem Vikan hefur stœkkað og blaðið mun koma út íhverri viku frá og með maímánuði. Ein þessara nýjunga er samkeppnin um ótrúlega lífsreynslusögu. Vikan greiðir 50.000 krónur fyrir mögnuðustu frásögnina. Þið sem lumið á ótrúlegri frásögn ættuð ekki að hika við að senda hana til Vikunnar fyrir 15. apid. Æskileg lengd ei tvær vélritaðar síður og munið að láta nafn, heimilisfang og simanúmer fylgja með. Utanáskriftin er. Samkeppnin „Þvi gleymi ég aldrei", Vikan - Seljavegi 2, 101 Reykjavík. Nánar verður greint frá þessu í nœstu Viku. En hugum að þessari Viku þvíafnógu er að taka. Systur giftust brœðrum, fertug kona á von á sínu tuttugasta barni, kaldir karlar fá útrás í kajakklúbbnum, Marentza Poulsen kennir okkur að töfra fram veislumat á páskaborðið og Mar- grét Hallgrímsson útbýr persónuleg og skemmtileg páskaegg með börnum sínum. Þetta og margt fleira athyglisvert er að finna í Vikunni. , En ég vek sérstaka athygli á greininni um „móralinn“ á kvennavinnustöðum (bls. 16). Þar er rætt við Þoikötlu Aðal- steinsdóttur sálfræðing sem m.a. hefur haldið fjölda námskeiða um vinnustaðasálfræði. Upphaf málsins vai þannig að lesandi Vikunnar hringdi ímig og óskaði eftir umfjöllun um samskipti kvenna á vinnustöðum. „Oft er okkur konum lýst sem mjúkum og skilningsríkum, en mín reynsla er sú að konur geta verið andstyggilegar hver við aðra i vinnunni , sagði lesandi blaðsins. Þórkatla var spurð út íþessi mál og íþessari áhugaverðu grein segir hún m.a.: „ Vinkonuhlutverkið verður stundum alltof stór hluti af myndinni á vinnustaðnum. Við bókstaflega „sukkum t diama- tíkinni". Við viljum vera allt í öllu og leika öll hlutverkin; við viljum vera húsmæður og mœður, vinkonur og konur á framabraut og svo blöndum við þessu öllu saman í einn hrœrigraut. “ Þórkatla kemur inn á margt fleira en gaman væri að fá ykkar viðbrögð við þessu málefni. Sendið Vikunni Unu eða slá- ið á þráðinn til mín efþið viljið tjá ykkur á síðum blaðsins um andrúmsloftið á kvennavinnustöðum. En um fram allt: Njótið Vikunnar. . . Sigríður Arnardóttir ritstjóri Jóhanna Harðardóttir ritstjóra- fulltrúi Þórunn Steingerður Stefánsdóttir Steinars- blaðamaður dóttir blaðamaður w Kristín Guðmunds- dóttir auglýsinga- stjóri Guðmundur Ragnar Steingrímsson Grafískur hönnuður Útgefandi Fróði Seljavegur 2, Sími: 515 5500 Fax: 515 5599 Stjórnarformaður Magnús Flreggviðsson Aðalritstjóri Steinar J. Lúðvíksson Sími: 515 5515 Framkvæmdarstjóri Halldóra Viktorsdóttir Sími: 515 5512 Ritstjóri Sigríður Arnardóttir Sími: 515 5582 Vikan@frodi.is Ritstjórafulltrúi Jóhanna Harðardóttir Sími: 515 5637 Blaðamenn Þórunn Stefánsdóttir Sími: 515 « 5653 Thorunn@frodi.is og Steingerður Steinarsdóttir Sími:515 ' 5569 Auglýsingastjóri Kristín Guðmundsdóttir Sími: 515 5628 Vikanaugl@frodi.is Ljósmyndarar Bragi Þór Jósefsson Gísli Egill Hrafnsson Sigurjón Ragnar Sigurjónsson Gunnar Gunnarsson Hreinn Hreinsson Grafískur hönnuður Guðmundur Ragnar Steingrímsson Verð í lausasölu Kr. 459,-. Verð í áskrift ef greitt er með greiðslukorti Kr. 344,-. Þr eintak . Ef greitt er með gíróseðli Kr. 389,-. Pr. eintak. Unnið í Prentsmiðjunni Odda hf. Öll réttindi áskilin varðandi efni og myndir Áskriftarsími: 515 5555
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.