Vikan - 15.03.1999, Blaðsíða 12
Nicola erfertug og gengur meö tuttugasta barnic
600 SOKKAPOR, 250
SKYRTUR OG 100 BUX-
~n~
Lífið gengur út á enda-
lausa þvotta og mat-
argerð hjá Nicolu
Pridham. Hún viðurkennir
að stundum sé það hálfgerð
martröð að sjá til þess að
allir eij>i hrein föt til skipt-
anna. I hverri viku þvær
hún 600 sokkapör, 250
skyrtur og boli og 100 bux-
ur. En þrátt fyrir allt
erfiðið getur hún
hún ekki hugsað sér
lífið án barnanna
sinna nítján. „Eg hef
verið ófrísk meira og
minna undanfarin
tuttugu ár og í hvert
sinn sem ég verð
ófrísk fyllist ég gleði
og eftirvæntingu.“
Nicola og Kevin
eiginmaður hennar eiga tólf
syni og sjö dætur og bíða
með eftirvæntingu fæðingu
tuttugasta barnsins sem
væntanlegt er í heiminn í
maí. Það er nóg að gera hjá
þeim hjónunum. Kevin er
húsgagnasmiður og rekur
eigið fyrirtæki. Hann vinnur
tólf tíma á dag, sjö daga vik-
unnar, til þess að sjá fyrir
fjölskyldunni sem vikulega
eyðir um 400 pundum til
matarkaupa.
En hvernig gengur dagur-
UR I HVERRI VIKU
Næst þegar þú ert alveg að gefast
upp á látunum og umstanginu í
kringum krakkaormana þína tvo
og sérð fyrir þér í hillingum hvíld-
arviku í Hveragerði skaltu hugsa
til Nicolu. Hun býr í Englandi og er
sannkölluð súpermanna. Hinn 3.
maí á hún von á tuttugasta barn-
inu sínu!
inn fyrir sig hjá nítján barna
móður? Nicola segir daginn
byrja klukkan hálfsex, þá
undirbýr hún morgunverð-
inn sem snæddur er í þrem-
ur hollum. „Annars byrja ég
yfirleitt daginn á því að
koma Kevin fram úr rúminu
og svo set ég þvottinn í
fyrstu vél dagsins. Krakk-
arnir vakna svo hver af öðr-
um og það er oft fjör í bið-
röðinni fyrir framan bað-
herbergið. Eftir að hafa
gengið úr skugga um að all-
ir séu hreinir og snyrtilegir
fer ég út í búð og kaupi 18
líta af mjólk og fimm stór
brauð. Litlu krakkarnir
borða fyrst og þau elstu síð-
ast og yfirleitt fara um þrír
pakkar af morgunkorni dag-
lega.“ Kevin er stoltur af
konunni sinni. „Fyrir utan
allan matartilbúninginn er
mikið verk að halda heimil-
inu hreinu. Eg veit hversu
erfitt þetta allt saman er
vegna þess að þegar hún er
á fæðingardeildinni geng ég
í húsmóðurstörfin!"
Það er dýrt að reka stóra
fjölskyldu. Öll venjuleg
heimilistæki verða ógn-
arsmá þegar þau þurfa að
þjóna mörgum og þess
vegna eiga þau þrjár þvotta-
vélar, tvo tauþurrkara, tvo
ísskápa og stóra frystikistu.
Ryksugan sem er í notkun á
heimilinu þessa dag-
ana er sú tuttugasta
og áttunda í röðinni.
„Oft höfum við
áhyggjur af því
hvernig við eigum að
fá endana til að ná
saman,“ viðurkennir
Nicola, „en enn sem
komið er höfum við
alltaf haft nóg að
bíta og brenna. Auð-
vitað þýðir þessi stóri
barnahópur að þau systkin-
in fá ekki allt það sama og
jafnaldrar þeirra. Stundum
kemur upp ágreiningur
vegna fatakaupa því auðvit-
að vilja táningarnir tolla í
tískunni.“ „Þau fá aftur á
móti ómælda ást og vænt-
umþykju," bætir Kevin við.
„Þegar ég kem heim úr
vinnunni á kvöldin gæti ég
þess að heilsa upp á þau öll-
sömul. Ég fylgist með því
hvaða bækur þau eru að
12 Vikan