Vikan


Vikan - 15.03.1999, Side 31

Vikan - 15.03.1999, Side 31
Það kennir ýmissa grasa í eldhúshillunum og það er cinhver sérstök hcimilishlýja fólgin þessum gömlu blikkbaukum sem standa saman í hóp eins og virðuleg fjölskylda. _ 1 k < ■ íira—i i igwgyw Luia A- i jii pF: * K J v iiimMiii’'' . sf: . 'V. iw = '<■ ^ i r N WLJ) aftur komnir í tísku og nú eru framleiddir baukar með nýjum mynstrum auk þess sem einstaka fyrirtæki hefur tekið upp framleiðslu á gömlu mynstrunum sem hafa átt fjölda aðdáenda. Sum fyrirtæki hafa meira að segja látið framleiða þá með „gamalli áferð“ og þeir líta út eins og snjáðir til að auka á söluna. Allir baukarnir hennar Þórdísar eru upphaflegrar gerðar og sumir orðnir mjög gamlir. „Ég veit reyndar ekki hvað þeir eru gamlir, en uppáhaldsbaukurinn minn, sá gamli frá Mackintosh, er orðinn mjög gamall. Hann fékk ég að heiman en þar var hann notaður undir garnafganga. Hann er bæði snjáður og beyglaður en samt er hann mjög virðuleg- ur og fallegur. Hann er meira að segja með upp- hleyptu mynstri sem enn heldur sér. Ég á nokkra uppáhaldsbauka, það eru þessir elstu og sérkennileg- ustu. Það er alveg upplagt að geyma í þeim smákökur og fleira en ég nota þá ekki undir neitt sérstakt. I nokkrum þeirra er eitthvert smádót en flestir eru þeir tómir.“ Hér eru nokkrir sem ekki hafa verið framleiddir undir sér- stöku vöruinerki. Þeir voru hugsaðir til að geyma nýlendu- vörur í og áttu að vera stofustáss ekki síður en nytjahlutir. Oft voru framleiddar margar dósir í stíl (sbr. kaffi og syk- urdósirnar). Flestir sem komnir eru yfir fertugt kannast við þessa óransrauðu með símynstrinu, því mörg húsmóðirin notaði svona dós undir kaffið um miðja öldina. Þessi blámynstraða er óskaplega fín og dömuleg og var al- veg dæmigerð fyrir bauka sem notaðir voru undir tölur eða annað saumadót. Vikan 31

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.