Vikan - 15.03.1999, Page 36
, Heimagerð ,
paskaegg!
Nú fara páskarnir að nálgast og
upp í hugann koma myndir af
páskaeggjum stórum og smá-
um. Flestir kaupa tilbúin, fagur-
skreytt páskaegg, en þeir, sem hafa
gaman af föndri og heimalöguðu góð-
gæti, geta auðveldlega útbúið jafn fal-
leg en persónulegri og öðruvísi egg.
Við Klapparstíginn er að finna
skemmtilega búð Pipar og salt. I búð-
inni fæst ýmislegt til heimilisbrúks,
allt frá matarlit upp í falleg kaffi- og
matarstell, svo ekki sé minnst á margt
sem tilheyrir páskunum. Það sem
vekur sérstaka athygli á neðri hæð-
inni í Pipar og salt eru mót, sem fáir
hafa áður séð, nefnilega páskaeggja-
mót. Þessi mót eru af ýmsum gerðum
og stærðum, láta lítið yfir sér og eru
úr plasti.
Það er mjög einfall að steypa
páskaegg og hver fjölskyldumeðlimur
getur búið til sitt páskaegg, skreytt
það og fyllt að vild. Bragðinu er auð-
veldlega breytt og það bætt eftir
smekk hvers og eins, t.d. með því að
bæta súkkulaði með appelsínubragði
eða suðusúkkulaði út í bráðið
rjómasúkkulaðið. í egg sem er 14 sm
á hæð þarf u.þ.b. 250-300 g af
súkkulaði (hér er notað 170 g af
rjómasúkkulaði frá Nóa-Síríus, 100 g
af Opal súkkulaðihjúp og í eitt eggið
er auk hins notað 30 g af appel-
sínutertuhjúp frá Mónu) .
i) Súkkulaðið er allt brætt yfir
heitu vatnsbaði og látið kólna
töluvert áður en það er sett í
mótin.
2) Mótunum er velt þannig að
súkkulaðið þeki alla skelina og
getur það tekið nokkra stund
að ná upp góðri þykkt upp við
kantinn. Það hefur gefist vel að
kæla skelina að utanverðu með
svampi vætturn í köldu vatni.
3) Þegar súkkulaðið er hætt að
renna til er mótið sett inn í frysti
í u.þ.b. 15 mín.
4) Eggið er losað með því að leggja
hendurnar yfir skelina og losnar
það þá auðveldlega.
ATH. Ef það heppnast ekki sem
skyldi að steypa eggin er ekkert
mál að bræða þau aftur yfir
vatnsbaði og byrja upp á nýtt.
5) Sælgætismolar lagðir í eggið og
er tilvalið að hafa heimagert
góðgæti. Hér eru Mozartkúlur
settar inn í, en þær eru gerðar
þannig: Núggat er skorið í litla
bita, utan urn þá er sett konfekt-
marsipan og formaðar litlar
kúlur. Síðan er kúlunum dyfið í
bráðið hjúpsúkkulaði og að
lokum er þeim velt upp úr
muldum heslihnetum eða
tertuskrauti (ýmislegt heimatil-
búið sælgæti var í jólablaði
Vikunnar 1998! ) .
6) Málshættinum má ekki gleyma
og er hægt að skrifa hann á
lítinn miða og stinga inn í.
7) Nú eru helmingar eggsins lagðir
saman. Mjög hentugt er að nota
lOml plastsprautu, fylla hana af
bræddu súkkulaði og sprauta því
á kantana til að líma saman
helmingana, þannig smitast
súkkulaðið ekki út urn allt.
8) Eggið má skreyta eftir smekk að
utan. Börn eru gjarnan mjög
listræn og geta búið til ýmislegt
úr lituðu marsipani, s.s
páskaungann á toppinn og rós-
ina framan á. M&M er vinsælt
og má hylja eggið með því. Að
lokum er tilvalið að nota lifandi
blóm sem skraut og á toppinn
má skrifa með súkkulaði nafn
þess, sem á að fá eggið, á útflatt
marsipan.
Nauðsynlegt er að geyma eggin
í kæli, innpökkuð, ef ekki á að
borða þau fljótlega.
Verði ykkur að góðu !
PIPAR OG SALT ER Á
KLAPPARSTIG 44
14 sm mót kostar 750 kr.
Matarlitur, 15 teg. 150 kr. hver
páskakanínur minni 275 kr.
páskakanínur stærri 395 kr.
36 Vikan