Vikan - 15.03.1999, Qupperneq 60
HEIlANUM
Gamanleikarinn Woody
Harrelson berst fyrir því
að lögleiða hass í
Bandaríkjunum. Hann
viðurkennir fúslega að
hann sé háður þessu
dópi og gerir grín að öllu
saman. Hann segist vilja
hætta en vinir hans leyfa
honum það ekki. „Ég vil
ekki vera dóphaus. Eg
hef hætt þessu öðru
hvoru en eftir tvo, þrjá
daga hafa vinir mínir
laumað að mér jónu,"
segir leikarinn.
LAUS OG LIÐUG
AHUGALAUS
LEIKARI
Háðfuglinn Bill Murray á
marga aðdáendur og hann
kippir sér ekki upp við að
ungir aðdáendur veiti sér að
honum. Honum fannst því
ekkert tiltökumál þegar ung
Ijóska gaf sig á tal við hann í
lyftu á hóteli og hann veitti
henni litla athygli. Nú sér
hann hins vegar eftir áhuga-
leysinu. Þegar hann var að
stíga út úr lyftunni sagði
Ijóskan: „Ég heiti Cameron
Diaz og ég er míkill aðdáandi
þinn.“ Murray snerist á hæli
og hafði greinilega meiri
áhuga en áður en það var of
seint - lyítudyrnar lokuðust
áður en hann gat komið upp
orði.
NYR KÆRASTI
Leikkonan Cybill Shepherd er
komin með nýjan kærasta. Hann
heitir Jay Ruben og hefur stundað
viðskipti í í meira en 25 ár í Los
Angeles þar sem vinir hans hafa
kallað hann „morðingjann". Cybill
var eyðilögð þegar tónlistarmað-
urinn Robert Martin hætti með
henni í október á síðasta ári, eftir
fjögurra ára ástarsamband. Nú
hefur hún fundið hamingjuna á
ný. „Það var sameiginlegur kunn-
ingi sem leiddi Jay og Cybill sam-
an,“ segir kunningi leikkonunnar.
„Jay er algjör krúsidúlla, indæll og
góðhjartaður. Viðurnefnið á ekkert
sérstaklega vel við hann. Þetta
byrjaði bara sem grín og hefur
ekkert með skapqerð hans að
gera.“
Shirley MacLaine er laus og liðug á ný. Leikkonan hefur
slitið sambandi sínu við Andrew Peacock, sem er sendi-
herra Ástrala í Bandaríkjunum. MacLaine, sem er orðin 64
ára, og sendiherrann voru óaðskiljanleg eftir að hann kom
til Washington fyrir tveimur árum. Því hefur lengi verið
haldið fram að Peacock sé hinn leyndardómsfulli pólítíkus
sem MacLaine sagðist hafa átt í ástarsambandi við árið
1983 í bók ævisögu sinni, Out on a Limb. Nú er Peacock
kominn með aðra dömu upp á arminn en sú er einnig virk
í stjórnmálaheiminum. Hún heitir Penne Korth og var
sendiherra Bandaríkjanna í Mauritius í forsetatíð Georges
Bush. MacLaine vill ekkert tjá sig um sambandsslitin og
dvelst nú á búgarði sínum í Nýju Mexíkó, fjarri frama-
poturunum í Washington.
EKKI MEÐ Á NÓTUNUM
Kirstie Alley hefur ekki alveg verið upp á sitt besta
undanfarið. Samstarfsfólk hennar í þáttunum Ver-
onica's Closet vissi vart hvaðan á sig stóð veðrið
þegar Kirstie mætti í náttfötum í vinnuna og talaði
tóma þvælu. Hún sagðist vera með svima og
kvartaði undan höfuðverk. Læknir var
kallaður til og hann lét flytja
leikkonuna á sjúkrahús til rann-
sóknar. Daginn áður hafði hún
farið á skauta með börnunum
sínum og flaug á hausinn
með miklum látum. Við rann-
sókn kom í Ijós að hún hafði
fengið slæman heilahristing.
Læknar ráðlögðu henni að taka
sér viku frí frá vinnu á meðan
hún var að jafna sig. Á með-
an var allt í lamasessi á
tökustaðnum og fríið kost-
aði framleiðendurna 7
milljónir króna.
60 Vikan
AFMÆLISBÖRN VIKUNNAR
15. mars: Judd Hirsch (1935), Fabio (1961), Renny Harlin ■
(1959) 16. mars: Jimmy Nail (1954), Bernardo Bertolucci
(1940), Jerry Lewis (1926) 17. mars: Rob Lowe (1964),
Gary Sinise (1955), Lesley-Anne Down (1954), Kurt Russell
(1951), Patrick Duffy (1949) 18. mars: Queen Latifah
(1970), Vanessa L. Williams (1963), Luc Besson (1959),
George Plimpton (1927) 19. mars: Bruce Willis (1955),
Glenn Close (1947), Ursula Andress (1936) 20. mars:
Michael Rapaport (1970), Holly Hunter (1958), Spike Lee
(1957), Theresa Russell (1957), William Hurt (1950) 21.
mars: Rosie O'Donnell (1962), Matthew Broderick Bruce WHI-
(1962), Gary Oldman (1958), Timothy Dalton (1946) 22. js verdur
mars: Reese Witherspoon (1976), Matthew Modine 44 ára hinn
81959), Lena Olin (1956), Andrew Lloyd Webber 19. mars.
(1948), William Shatner (1931), James Brown (1920)
23. mars: Keri Russell (1976), Natascha McElhone (1971),
Damon Albarn (1968) 24. mars: Lara Flynn Boyle (1970), Anna-
bella Sciorra (1964), Kelly LeBrock (1960) 25. mars: Tatjana
Patitz (1966), Sarah Jessica Parker (1965), Elton John (1947),
Aretha Franklin (1942), Jennifer Grey (1960), Martin Short
(1950), Steven Tyler (1948), Diana Ross (1944), Alan Arkin
(1934), Leonard Nimoy (1931) 27. mars: Mariah Carey (1970),
Quentin Tarantino (1963), Michael York (1942) 28. mars: Reba
McEntire (1955), Dianne Wiest (1948).