Vikan


Vikan - 14.06.1999, Page 37

Vikan - 14.06.1999, Page 37
Uppskrift Vikunnar kemur að þessu sinni úr fórum Unnar Þorsteinsdóttur á Akureyri. Að hennar sögn bjargaði þetta brauð lífi hennar en fyrir nokkrum árum var Unn- ur illa haldin af sveppasýk- ingu (candida albicans) eftir alvarleg veikindi og mikla lyfjanotkun. Endurskipu- lagning mataræðis reyndist grundvöllur bata og leiddi tilraunastarfsemi í eldhúsi hennar meðal annars af sér þetta brauð. Margir hafa hrifist af heilsubrauðinu og hvatt Unni til að koma því á framfæri. Þaðerokkur ánægja að kynna hér upp- skriftina. Heilsubrauð 3 bollar haframjöl 3 bollar hveitiklíð 5 bollar heilhveiti ii tsk. lyftiduft 2 msk. púðursykur eða hunang 1I2 bolli grœn óiívuolía Vökvi til að bleyta deigið eftir þörfum Vökvinn þarf að vera í hæfilegu magni til að deigið sé mátulega þykkt. Betra er að hafa það frekar blautt því annars hættir brauðinu til að molna. Vökvinn má vera blanda af mjólk eða súr- mjólk fyrir þá sem það þola, vatni, grænmetissoði, kjöt- soði eða afgangi af góðri súpu. Mjög gott er að nota kjötsúpu. Öllu er blandað saman í skál og hært vel saman með sleif. Magnið passar í þrjú meðalstór form. Bakist í tæpa klukkustund við 190- 200 gráðu hita. Að bakstri loknum er heitum brauðun- um hvolft á rist eða skurðar- bretti og diskaþurrka lögð yfir þau, til þess að brauðin verði ekki hörð er þau kólna. Þetta er nokkuð stór uppskrift en brauðið geym- ist vel í frysti og er nánast eins og nýtt eftir nokkrar vikur í frosti. Þetta er grunnuppskrift en tilvalið er að breyta stund- um um mjöl og hlutföll milli mjöltegundanna til að fá meiri fjölbreytni og vera ekki alltaf með sama brauð- ið. Þess verður þó að gæta að alltaf sé ein teskeið af lyftidufti á móti hverjum bolla af mjöli. áfN is' 4 VV, , VV f V

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.