Vikan - 19.10.1999, Blaðsíða 11
Sérfræðingar tjá sig um hvers vegna menn heillast af gribbum
T T T T T T T T T
að hringja í mig næsta kvöld,
sló ég galvösk á þráðinn til
hans. Ég var harðákveðin í því
að láta hann ekki sleppa. Þegar
ég var búin að ná athygli hans
breytti ég aðeins um aðferð og
lét hann „halda" að hann héldi
sjálfstæði sínu og frelsi. Sú að-
ferð fólst í því að hringja ekki
of oft og daðra léttilega við vini
hans en það gerði hann alveg
brjálaðan. Við vorum farin að
búa saman eftir ár."
Gribbur láta ekki aðra
kvenmenn ógna sér.
Tæfur halda fast í menn sína
þegar þær eru búnar að negla
þá í hnapphelduna á annað
borð. Þær líta á menn sína sem
verðmæta eign sem enginn
skyldi dirfast að reyna að ná
tökum á: „Hann verður mjög
ánægður með sig þegar aðrar
konur eru að gefa honum auga
og ég sýni tennurnar," segir
Lovísa. „Ég geng svo langt að
hella „óvart" niður á konur sem
eru að gera sig til við manninn
minn. Það er alltaf ég sem sé
um skítverkin þegar að svona
málum kemur. Maðurinn minn
brosir bara kjánalega og að-
hefst ekkert enda veit hann að
ég tek málin í mínar hendur.
Hann hefur lúmskt gaman af
því. Ég er líka sú sem kvarta
hástöfum ef við fáum ekki góða
þjónustu á veitingahúsi eða lé-
legt hótelherbergi þegar við
ferðumst. Þetta er bara mín
deild og við erum bæði hæstá-
nægð með það.
Gribbur semja ekki.
Ef þú spyrð gribbu hvernig
hún fari að því að krækja alltaf í
frábæra menn, þá mun hún
segja: „Ég á þá skilið." Þess
háttar lífsviðhorf tryggir að
kona sættir sig ekki við neitt
minna en það besta. „Hvers
vegna ætti maður að sætta sig
við karlmann sem maður er
ekki fullkomlega ánægður
með?" spyr Ásta. „Ef ég kynn-
ist manni sem ég tel
hafa eftirsóknar-
verða mannkosti þá
slæ ég til og kynnist
honum, jafnvel þótt
ég sé svolítið smeyk
í fyrstu. Ef hann
stenst ekki vænt-
ingar mínar, þá læt
ég hann róa. í mín-
um huga er mátu-
legur skammtur af
tæfuskap jafngildi
þess að hafa gott
sjálfsmat. Ég er
hvorki betri né
verri en aðrir."
„Menn sem njóta velgengi og hafa átt kuldalegar og fráhrindandi
mæður velja sér oft á tíðum maka sem líkist móður þeirra í hegðun og
framkomu. Það er í raun eins konar masókismi. Þeir eru endalaust að
reyna að öðlast viðurkenningu og ást hinnar kaldhjörtuðu móður."
(Judith Brisman, sálfræðingur við New York City Hospital).
"Vissan um skelfingu er skárri kostur en skelfing óvissunnar." (John
F. Baumann, geðlæknir í Los Angeles).
„Gribbur eru ósnertanlegar og líta út fyrir að þurfa ekki á karlmönnum
að halda. Örugg og ákveðin kona sem hugsar fyrst og fremst um sjálfa
sig þrengir ekki að karlmanni, sem svo verður til þess að hann hræðist
síður náin samskipti." (Helen Wintrob, klínískur sálfræðingur í Brooklyn).
„Vald er áhrifaríkasta ástarlyfið." (Dr. Henry Kissinger)
„Karlmenn heillast af konum sem gera og segja það sem þeim sýnist
vegna þess að slíkar konur eru tákngerfingar fullkomins frelsis sem
margir karlmenn þrá að hafa en geta einhverra hluta vegna ekki tjáð sig
á jafn ákveðinn máta." (Dr. Leslye Mize, prófesor í sálfræði við háskól-
ann í Houston).
Heimsfrægar gribbur
Madonna
Madonna er afar ákveðin og
stjórnsöm stjarna. Stæltur, fal-
legur líkami hennar og
eldrauðar varir hafa sannfært
karlmenn um allan heim að
hún sé sannkölluð kyn-
lífsmaskína. Hún hefur aldrei
farið í felur með áhuga sinn á
karlmönnum og kynlífi og lætur
engan draga sig á asnaeyrum.
Hún veit hvað hún
I og sættir sig
Sharon Stone
Sharon Stone nappaði fram-
Hleiðandanum Bill
MacDonald frá
eiginkonu hans
eftir aðeins
nokkurra
daga kynni
og fór létt
með það. Hún hefur fengið
það orðspor að fá ávallt því
framgengt sem hún ætlar sér og
að ekkert fái stöðvað hana.
ekki við neitt minna.
Shannen Doherty
Hún er villiköttur samkvæmt
tveimur fyrrverandi mönnum
hennar. Hún miðaði eitt sinn
byssu að að öðrum þeirra og hót-
aði að láta berja hinn
til óbóta. Samstarfs-
' 1 'M fólk hennar hefur i
gegnum tíðina kvart-
að sáran undan frekju
og yfirgangi Sahnnen
en hún gefur sig ekki og hefur
fær undantekningarlaust allt sitt
fram.
Courtney Love
Hin umdeilda Courtney Love
fékk á sínum tíma augastað á
Kurt Cobain og hún ákvað
að ná í þennan mann,
hvað sem það kostaði.
Hún hringdi stöðugt í
hann og sagði oþinskátt í
mörgum blaðaviðtölum
að hún væri hrifin af honum. Hún
laug meira að segja til og sagðist
vera byrjuð með honum. Á end-
anum kom hún sér á framfæri við
Kurt en það gerðist þannig að
hún fór á tónleika hjá Nirvana og
nærri braut niður hurðina á bún-
ingsherbergi hans. Örlög Kurts
voru ráðin.
Vikan 11