Vikan - 19.10.1999, Page 27
Erroll og Díana urðu fljótlega óaðskiljanleg en
augljóst flestum að Sir Jock var langt frá því
ánægður með ástandið. Hann var þó harðákveð-
inn í því að sleppa ekki konu sinni en tilfinninga-
rótið varð til þess að hann drakk óhóflega og tók
inn morfín til að geta sofið. Eftir að hann hafði
rifist heiftariega við Erroll lávarð sá hann að
sennilega fengi hann engu breytt um samband
hans og konu sinnar. Um tíma leit svo út fyrir að
hann hefði gefist upp við að berjast á móti. „Hann
er svo ágætur að það er ólykt af því," sagði Erroll
við vini sína.
Sir Jock bauð síðan til kvöldverðar í Muthaiga
klúbbnum þar sem hann stóð upp úr sæti sínu og
skálaði fyrir elskendunum. Næsta dag fannst Er-
roll lávarður dauður í bíl sínum úti í skurði. Hann
hafði verið skotinn í hálsinn. Samband hans og
Díönu hafði staðið í tæpar sjö vikur. Sir Jock var
handtekinn og ákærður fyrir morð en á meðan
hann sat í gæsluvarðhaldi veltu innflytjendur í
Kenýa því alvarlega fyrir sér hvort hann væri í
raun sekur.
Blöð í Bretlandi og Bandaríkjunum slógu
morðinu upp á forsíðu og þar hófust ekki síður
umræður um sekt eða sakleysi Sir Jocks. Díana
var nánast frávita af sorg vegna dauða elskhuga
síns og trúði vinum fyrir því að hún tryði tæplega
þeim yfirlýsingum eiginmanns síns að hann væri
saklaus. Þrátt fyrir það stóð hún með manni sín-
um og réð lögfræðing til að verja hann. Réttar-
höldin vöktu heimsathygli og flestir meðlimir
Muthaiga klúbbsins stóðu með Sir Jock. Díana
fékk allt illa umtalið, hún var stimpluð lauslætis-
drós og drykkja hennar tíunduð. Hún lét slúðrið
ekki á sig fá, konan sú, heldur kom á hverjum
degi í réttarsalinn í glæsiflíkum og var aldrei í
sömu flíkinni tvisvar þær fimm vikur sem réttar-
höldin stóðu yfir.
Sir Jock var sýknaður vegna skorts á sönnunum
og margir töldu að morðið hefði yfirbragð hefnd-
ar afbrýðisamrar konu. Meðal þeirra sem nefndar
voru sem líklegir sökudólgar voru Alice de Janzé
ekki hvað síst vegna þess að hún var búin að sýna
að hún hikaði ekki við að kenna elskhugum sínum
lexíu ef þeir sviku hana, Gwladys Delamere sem
var sögð syrgja Erroll frá því að ástarævintýri
þeirra lauk og sagan segir að hún hafi aldrei kom-
ist yfir hann, June Garberry var enn ein og einnig
var Díana sjálf nefnd til sögunnar því Erroll var
Bíllinn seni lík Errolls
lávarrtar l'annst í.
þekktur fyrir allt annað
en tryggð og ævintýri
hans entust yfirleitt
ekki lengi. Alice de
Janzé drap sig átta
mánuðum eftir að Er-
roll var myrtur. Hún
vafði túrban um höfuð
sitt, lagðist upp í blóm-
um skreytt rúm sitt og
skaut sig.
Eftir réttarhöldin
fóru þau Díana og Sir
Jock til Indlands og ætl-
uðu að hvíla sig hjá vin-
um sínum. Hún lýsti
ferðinni sem algjörri
martröð og samband
þeirra var orðið þeim
báðum óbærilegt. Van-
traust og iðrun gagntók
bæði. Afleiðingar
hneykslisins voru þó
meiri en þau höfðu gert
lávarðar hina íðilfögru
Djinn höll við Naivasha
vatnið. Líkt og til að
halda í minninguna um
manninn sem var myrt-
ur hékk málverk af Er-
roll uppi í húsinu.
Hjónin lifðu í einangr-
un við vatnið en Díönu
tókst samt að komast í
kynni við og hefja ást-
arsamband við Gilbert
Colvile sem var besti
vinur Errolls. Colvile
var einn stærsti nauta-
bóndi Kenýa og vell-
auðugur. Sir Jock hélt
áfram að drekka og
heiftarlegar skapsveifl-
ur hans urðu brátt al-
kunna. Með hjálp Col-
viles og samúðar al-
mennings tókst Díönu
að ná aftur fyrri stöðu
hans giftist Díana Col-
vile sínum og sýndi
honurn ástúð það sem
eftir lifði ævinnar. Hann
á móti keypti Djinn höll
handa henni til að sýna
að hann skildi hversu
djúpar tilfinningar
hennar í garð Errolls
höfðu verið. Síðar varð
hún ástfangin af Tom
Delamere og skildi við
Colvile. Sagt var að
hann hefði séð ósköpin
öll eftir henni en Díana
og nýi maðurinn reynd-
ust honum vinir í raun
og samband hans við
þau bæði var náið og
gott.
Díana náði fljótlega
að endurreisa virðingu
sína innan breskrar yf-
sér grein fyrir. Fólk
forðaðist þau. Enginn
heilsaði þeim á götu og
þeim var bönnuð inn-
ganga í Muthaiga
klúbbinn. Þrátt fyrir
niðurstöðu réttarins
þótti ekki fullsannað að
Sir Jock væri saklaus og
margir veltu því sama
fyrir sér með Díönu.
Eftir útskúfun þeirra
úr samfélaginu tóku
þau á leigu hús Errolls
sinni meðal íbúanna við
vatnið.
Að lokum hélt Sir
Jock til Englands yfir-
kominn af þunglyndi og
vanlíðan. Þar játaði
hann fyrir tveimur vitn-
um að hafa drepið Er-
roll bókaði sig síðan inn
á hótel og sprautaði sig
með of stórum skammti
af morfíni. Eftir dauða
irstéttar sem Lady
Delamere og bjó alla
tíð í Kenýa. Hún var þó
ætíð umrædd í slúður-
dálkum dagblaðanna en
hvort fyrsti maður
hennar raunverulega
drap Erroll eða hvort
það var verk forsmáðr-
ar konu hefur aldrei
þótt fullsannað.