Vikan - 19.10.1999, Blaðsíða 38
Vikan
Grœnt og vœnt
niður. Það er því sannarlega
nægur tími til að vera með
blómstrandi páskaliljur um
jólin.
Það er svo sannarlega
gaman að vera með blóm-
strandi lauka, sérstaklega ef
þið eigið fallegar körfur,
skálar eða potta til að setja
laukana í. Síðan má skreyta
ílátin með einhverju sem
minnir á jólin, vilji maður
það. Rétt er að benda á að
það verður að setja laukana
niður í léttan jarðveg. Best
er að spyrjast fyrir þegar
laukarnir eru keyptir, hvers
konar mold hæfi þeim best,
og hvort mælt sé með ein-
hverju sérstöku hvað það
varðar til þess að tryggja
betri útkomu, fljótari vöxt
og fallegri blóm.
Og svo, til þess að benda
ykkur á áframhaldandi not
af jólalaukunum, þá get ég
sagt ykkur að ég hef ævin-
lega tekið hýasinturnar mín-
ar eftir jólin, látið laukana
þorna vel og undir vor hef
ég farið með þá út og stung-
ið þeirn niður í blómabeðið.
Jólahýasinturnar frá í fyrra
hafa staðið í blóma í allan
septembermánuð í garðin-
um mínum.
Á hverju hausti fáum við
fiðring þegar við heyrum
talað um haustlaukana
sem komnir eru á mark-
aðinn. Reyndar er nokkuð
liðið á haustið og þess
vegna rétt að huga strax
að laukakaupum og fara
að velta fyrir sér hvar við
viljum setja laukana niður
svo þeir setji sem bestan
svip á garðinn næsta
sumar. En þeir sem ekki
eiga sér garð geta þess í
stað brugðið við og keypt
sér jólalauka sem munu
skreyta heimilið um jólin.
Við litum inn í
Blómaval og þar
sagði Svava
Rafnsdóttir okk-
ur að á boðstólum væru að
þessu sinni hvorki fleiri né
færri en 205 laukategundir
og afbrigði. Tegundir jóla-
lauka eru ellefu talsins, síð-
an eru einar 30 tegundir og
afbrigði smálauka og lilja,
túlípanarnir eru 130,
páskaliljurnar 25 og hýasint-
urnar 9.
Jólalauka setjum við niður
nokkuð löngu fyrir jólin, ef
þeir eiga að verða upp á sitt
besta þegar hátíðin gengur í
garð. Það er farið svolítið
misjafnt að við jólalauka-
ræktina.
Hýasintulaukar eru settir
niður í skál eða pott og
hafðir á köldum, dimmum
stað (10°C) í átta til tíu vik-
ur. Þegar blöðin eru orðin
10 sentímetra há er pottur-
inn tekinn og settur út í
glugga eða á bjartan stað í
herbergi þar sem hitinn er
að minnsta kosti 18°C. Hý-
asinturnar er einnig hægt að
rækta í þar til gerðum
hýasintuglösum. Vatn
er sett í glasið og
laukurinn ofan á það
^ M en vatnið er haft það
hátt að laukurinn nemi við
vatnsyfirborðið. Eftir að
ræturnar eru farnar að
myndast verður að gæta
þess að þær nái ævinlega
niður í vatnið. Yfir laukinn
er sett eins konar kramarhús
sem ver hann fyrir birtunni.
Þegar blöðin eru orðin hæfi-
lega há er kramarhúsið tek-
ið svo plantan fái birtu.
Túlípanar, ekki síst
knallrauðir, hæfa vel jóla-
skreytingunum. Þið getið
keypt ykkur jólatúlípana, til
dæmis Brilliant Star, sett þá
niður og látið þá standa í 8-
10 vikur á svölum stað. Um
leið og blöðin hafa náð 10
sentímetra hæð eru laukarn-
ir færðir út í glugga eða á
bjartan stað og hafðir í
stofuhita.
Páskaliljur, sérstaklega
þær sem bera smágerð
blóm, hæfa einnig í jóla-
skreytinguna. Laukarnir
(Paperwhite Narcissi) eru
settir niður og hafðir á köld-
um en björtum stað til að
byrja með. Fljótlega spretta
blöðin upp úr
laukunum og
þeir blómstra
fjórum til sex
vikum eftir að
þeir hafa
verið settir
1 iili|nmar
Paperwhite narcissi
heitir þessi hvíta
páskaliijiitegiiiul. Rétt
er að taka t'rain að við
teiigiiin iiiviuliriiar af
blóniapokiiin úr
lilóinavali og fenguin
levfi til að nota |ner.
Marglitar hý-
* asiutur niinini
okkur ajolin.
jólalauka