Vikan


Vikan - 19.10.1999, Síða 45

Vikan - 19.10.1999, Síða 45
yrði hún að biðja Guð að fyrirgefa sér fyrir að hugsa svo ljótar hugsanir. Seint um eftirmiðdaginn var Elise orðin nógu hress til þess að fá sér tebolla og henni til mikillar undrunar var það Francesca sem færði henni hann. Hvernig líður þér Elise? spurði hún. Lang- ar þig í eitthvað sérstakt? Nei takk, sagði Elise kurt- eislega og tókst að kreista fram bros. Nú verð ég að spyrja hana um strákinn, hugsaði hún með sér. Skyldi hann hafa séð hnífinn? Ég vona að Christian hafi ekki orðið hræddur, sagði hún. Við urðum öll hrædd, sagði Francesca. Þú fékkst slæma byltu. Elise lagðist á koddann og lokaði augunum. Francescu grunaði ekkert! Alls ekkert! Ég var svo þreytt, sagði hún. Hún gerði sér grein fyrir að þetta yrði að gerast í kvöld. Þrátt fyrir að Julian væri heima. Tíminn leið og Elise beið þolinmóð. Julian var síðast- ur í háttinn. Hann kom inn til hennar og settist á rúm- stokkinn. Líður þér betur? spurði hann. Hún kinkaði kolli og strauk hnífnum sem var á dýnunni við hliðina á henni. Ertu búin að taka lyfin þín? Aftur kinkaði hún kolli og þorði ekki að segja orð af hræðslu við að hann upp- götvaði hvað hún var í miklu uppnámi. Hann kyssti hana á kinn- ina. Góða nótt, Lise litla, sagði hann. Hún þrýsti hönd hans. A morgun verður allt í lagi, hugsaði hún. Bíddu bara! Þú átt eftir að þakka mér fyrir

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.