Vikan - 19.10.1999, Blaðsíða 51
Texti: Halla Bára Gestsdóttir
Myndir: Gunnar Sverrisson
t a • ^Framtíðin er á •
Djupavogi
Grípi löngunin mann til að hverfa burt úr amstri hversdagslífsins, keyra á fallegan og
friðsælan stað og vera í góðu yfirlæti umvafinn náttúrunni er Djúpivogur rétti staðurinn.
Bærinn þar sem
austfjarðaþokan
minnir á sig er
ekki stór en
heimamenn eru stórhuga.
Djúpivogur stendur við
Berufjörð, fjörð sem hefur
margt uppá að bjóða fyrir
víðsýna ferðamenn. Þar er
fallegt umhverfi með Bú-
landstindinn í forgrunni og
stutt er að sigla út í hina
sögufrægu eyju Papey.
Einnig er mikið um fallegar
gönguleiðir við Djúpavog,
þar er golfvöllur og sund-
laug og boðið upp á
sjóstangveiðiferðir. Hægt er
að heimsækja Löngubúð, -
safn Ríkarðs Jónssonar
myndskera og minningar-
stofu um Eystein Jónsson
ráðherra og Sólveigu Eyj-
ólfsdóttur. En til að geta
tekið á móti ferðamönnum,
innlendum sem erlendum,
þarf að geta boðið uppá
gistiaðstöðu.
Gamalt og rótgróið hótel,
Hótel Framtíðin á Djúpa-
vogi, er eitt fallegasta og
vinalegasta hótelið á lands-
byggðinni án þess að á aðra
sé hallað. Ný viðbygging við
gamla hótelið, sem opnuð
var í júní, er reisulegt
bjálkahús með átján rúmgóð
herbegi með baði og nauð-
synlegustu þægindum, og í
gamla húsinu eru herbergi
með handlaugum og svefn-
pokapláss. I nýju bygging-
unni er samkomusalur sem
getur rekið 120 manns í mat
og 250 manns í sæti og þar
er auðvelt að slá upp sam-
komum allt frá ráðstefnum
til stórdansleikja. Veitinga-
aðstaða er í gamla hótelinu
og bjóða hótelhaldarar uppá
mjög fjölbreyttan matseðil
með lystilegum réttum og
áherslu á sjávarfang á sann-
gjörnu verði. Við ýmis til-
efni er tilvalið fyrir hópa af
öllum stærðum að heim-
sækja Hótel Framtíð og þá
sérstaklega þá sem vilja
komast úr þéttbýlinu og
njóta hins fallega fjalla- og
fjarðahéraðs.
Hótel I rainlíú á Djúpa- —.
vogi. Gamla húsift á sér ' . ■ ~'£i-..
langa scigu sem verslunar-
hús en jireligsli voru lárin '
art set ja liótelinu höinlur.
IVleft nýrri viðbyggingu
opnast inargir niiiguieik-
ar til ráftstefnu- og
skeinintanahalds á
Djiipavogi.
Á Hótel Fráintíft er
fyrsfa flokks veitinga-
hús jiar scni áhgrsla er
á sjávar%j‘Fr^4ísK'-
niömuim stájoarihs.