Vikan - 19.10.1999, Qupperneq 60
BOTNINUM NÁÐ
Kraftakarlinn Jean Claude Van Damme var handtek-
inn fyrir ölvunarakstur í Hollywood á dögunum.
Hann sveigöi glannalega milli akreina á Sunset Bou-
levard og lögreglan segir aö hann hafi greinilega
veriö mjög ölvaöur. Van Damme, sem fór í meðferð
vegna kókaínfíknar fyrir þremur árum, er nú aftur
kominn í sukkið. Nokkrum dögum eftir að hann var
handtekinn sást hann með tveimur gleðigellum á
bar á fínu hóteli í Beverly Hills. Eftir að hafa drukkið
stíft í nokkurn tíma kom hann út þar sem Ijósmynd-
ari beið eftir honum. Van Damme hafði í hótunum
við Ijósmyndarann en starfsmenn hótelsins náðu að
stöðva kapþann áður en honum tókst að lumbra á
Gamanleikarinn John Lithgow erfeiknavinsæll í
Bandaríkjunum þar sem hann leikur aðalhlutverkið í
þáttunum 3rd Rock From the Sun, sem eitt sinn
voru á dagskrá Stöðvar 3. f sumar dvaldi hann í hit-
anum á Sþáni þar sem hann var að leika í riddarann
Don Quixote í nýrri mynd fyrirTNT sjónvarpsstöðina.
"Riddaraklæðin voru alveg að drepa mig," segir Lit-
hgow. "Hitinn var svo rosalegur. Það var samt alveg
einstök lífsreynsla að stökkva á hestbak með spjótið
og hjálminn og fara á skeiði um sveitina." Lithgow
fór í stranga megrun áður en hann tók hlutverkið að
sér og losaði sig við 8 kíló með því að borða fisk og
leika tennis á hverjum degi.
, viKunnar
18. okt.:
FÉLL FYRIR KAPPAKSTURSHETJU
Ástralska söngkonan Dannii Minogue, sem hefur
lengi vel verið í skugganum af eldri systur sinni,
Kylie Minogue, er búin að finna stóru ástina. Undan-
farna þrjá mánuði hefur hún
verið með kanadíska
kaþpaksturskappanum
Jacques Villeneuve og þau
eru nú komin í sambúð.
Dannii er flutt í glæsivillu
ástarpungsins í
skattaparadísinni í Mónakó.
"Dannii telur að Jacques sé
fullkominn og hún elskar líf-
iðíMonte Carlo," segirnáin
vinkona hennar. "Við bú-
umst við að brúðkaupi áður
en langt um líður."
ósAn vm pabba
Leikkonan og handritshöf-
undurinn Carrie Fisher er
ekki ánægð með pabba sinn
þessa dagana. Eddie Fisher
var að gefa út ævisögu sína,
sem hefur sett allt á annan
endann í Hollywood. Carrie
var sögð svo svekkt að hún
Jean-Claude
Van Damme (1960),
Chuck Berry (1926)
Jon Favreau
(1966), John Lithgow
(1945)KJ^«H
Snooþ Doggy Dogg
(1972), Dannii
Minogue (1971), Jerry
Orbach (1935)
^^Jcarrie Fisher
(1956)^^2 Valer-
ia Golino (1966), Jeff
Goldblum (1952),
Catherine Deneuve
(1943), Jan de Bont
(1943), Christoþher Ll-
oyd (1938)gffi™|
Dwight Yoakam
(1956), Pelé (1940)
j^^^2||evin Kline
(1947)
hafi íhugað að breyta eftirnafni sínu í Reynolds, en
mamma hennar er leikkonan Debbie Reynolds.
Eddie hefur verið giftur þremur af skærustu stjörn-
um kvikmyndasögunnar, þeim Debbie Reynolds, Liz
Taylor og Connie Stevens, og hefur frá ýmsu að
segja. Eddie greinir frá því að Liz hafi viljað vera
barin áður en þau stunduðu kynlíf og að hún hafi
gleyþt fullt glas af þillum eftir að hann hótaði fara
frá henni. Eddie segir að Debbie hafi verið kynköld
auk þess sem hún var mjög "taþsár" þegar hann
tók Liz fram yfir hana. Eddie greinir einnig frá ástar-
sambandi við leikkonuna Ann-Margret á sama tíma
og hún var að lúlla hjá John F. Kennedy, forseta. Aðrar
konur sem Eddie segist hafa sofið hjá eru m.a.: Joan
Collins, Marlene Dietrich, Bette Davis, Angie Dickin-
son, Juliette Prowse, Stefanie Powers, Michelle
r
NU
Jeff Goldblum fagnar 47 ára afmæli sínu hinn 22.
október. Þessi hávaxni og skuggalegi leikari lék í
tveimur af vinsælustu myndum síðasta áratugar en
hann hefur aldrei náð að festa sig í sessi sem stór-
stjarna. Hann lék í Jurassic Park sem náði inn 913
milljónum dala í aðgangseyri um víða veröld og og
Independence Day sem halaði inn 798 milljón dala.
Goldblum varð moldríkur eftir þessar myndir og get-
ur leyft sér að taka lífinu rólega í leiklistinni og hann
hefur aðallega leikið lítil aukahlutverk undanfarin ár.
"Peningarnir voru aldrei ástæðan fyrir því að ég fór í
leiklistina. Ég nýt þess að leika og núna kenni ég
ungum leiklistarnemum þegar ég er ekki að vinna
við kvikmyndir." Goldblum nýtur þess líka að vera í
sviðsljósinu. Kunnugir segja að hann hafi sett
heimsmet þegar Blockbuster verðlaunin voru afhent
í Los Angeles fyrr á árinu. Goldblum var klukku-
stund og 25 mínútur að ganga eftir 40 metra rauð-
um dregli þar sem Ijósmyndarar stóðu í langri röð
Gamanleikarinn Kevin Kline er þekktastur fyrir að
leika í geggjuðum gamanmyndum eins og A Fish
Called Wanda (1988), Soaþdish (1991) og Dave
(1993) en sjálfur segist Kline vera mjög alvarlegur
leikari. Hann útskrifaðist frá þekktasta listaskóla
heims, Julliard, og í upphafi leikferilsins var Kline í
leikhópi sem setti upp verk eftir Shakespeare víða
um Bandaríkin. Eftir að hafa leikið i misheppnaðri
sápuóperu í sjónvarpi lá leiðin til Hollywood. "Ég
held að alla leikara í Bandaríkjunum langi til að
verða kvikmyndastjörnur. En mig langaði aldrei til
að leika í heimskulegum myndum. Ég vildi leika í
vönduðum kvikmyndum. Ég sór þess líka eið að
leika aldrei í auglýsingu eða í sápuóperu. Ég gerði
þó hvort tveggja um leið og ég var búinn í námi og
farinn að svelta," segir Kline.