Vikan - 02.11.1999, Side 4
J^mesandi...
bíii og lansffitsm
er loksins farin að skilja að
Mj maður þarfekki að geta allt.
M ' Ég er ekki bifvélavirki og
M tm verð það aldrei. í mínum
huga eru bílar einungis tœki til að komast
frá einum stað til annars og ég vil að mitt
farartœki sé í lagi.
Mér hefur alltafþótt vœnt um bílana
mína. Pótt sumir hafi verið komnir til ára
sinna og aðrir mis-
munandi góðir vil
ég halda þeim eins
öruggum til aksturs
og ég get. Ég vil geta
treyst þeim, öryggis-
atriði verða að vera
í lagi og þeir þurfa
að vera íþví ástandi
að ég geti verið viss
um að komast leið-
ar minnar, sœmilega
hreinir og helst með
fullan tank afbens-
íni.
Afþví að ég er ekki sérfrœðingitr í með-
ferð bíla, þá vil ég gjarnan borga fyrir þá
þjónustu sem ég þarftil að bíllinn minn
og ég séum ánœgð.
Og ég fœ svo sannarlega að borga, rétt er
það. Pað er hins vegar verra með þjónust-
una!
Ég tek það skýrtfram að afgreiðslufólk á
bensínstöðvum er yfirleitt hið greiðugasta
fólk og þœgilegt í viðmóti, en það er ekki
hœgt að segja það sama um stefnuna sem
rekin er á mörgum þessara stöðva. Ég er
orðin hundleið á "búðarleiknum" sem
bensístöðvarnar eru komnar í, á kostnað
þjónustu við bílana og bíleigendurna.
Er ekki nóg af matvöruverslunum og
vegasjoppum á landinu þó ekki þurfi að
fylla allar bensínstöðvar af neysluvöru
sem koma bílum hreint ekkert við?
Égferá bensínstöð til að látafyUa á bílinn
minn og ég vil að bílunum sé sinnt á þess-
um stöðum. Hvers vegna í ósköpunum
þarfég að standa í biðröð á eftir fólki sem
er að kaupa sér pylsu með öllu, mjólk og
brauð, litabók eða lesgleraugu þegar ég er
að kaupa bensín á bílinn minn á sérhœfðri
bensínstöð?!
Afhverju dettur engum í hug að þvo
framrúðuna, kíkja í rúðuúðatankinn eða
tékka á olíunni á bílnum mínum ístað
þess að bjóða mér mjólk og brauð sem ég
mundi aldrei kaupa á svona stað? Mér
finnst það fáránlegt!
Mér er svosem nákvœmlega sama þótt eig-
endur bensínstöðva hafi meiri áhuga á að
selja mat og leikföng en bílavörur efégfœ
það sem ég þarf. Það er hins vegar lág-
markskrafa að þeir hafi smekkvísi til að
aðgreina þetta tvennt svo við, sem erum
komin á bensínstöðina bílsins vegna og
borgum bensínið okkar fullu verði, fáum
almennilega þjónustu.
Ég bíð spennt eftir bensínstöð sem veitir
GÓÐA þjónustu við bíleigendur eins og
þá sem ég minntist á áðan og þykir sjálf-
sögð víðast hvar í heiminum þar sem fólk
borgar fullt verð fyrir bensínið. Þegar sú
bensínstöð opnar verð égfastur viðskipta-
vinurþar og ég verð örugglega ekki sá
eini því ég þekki fjölda fólks, sérstaklega
konur sem eru orðnar hundleiðar á þess-
um þjónustuskorti á bensírísiöðvunum.
En nóg um það. Það er komin ný Vika
með fjölbreyttu lesefni við allra hœfi. Hér
er að finna efni tengt mannlegum sam-
skiptum, atvinnulífinu, heimilinu, tísk-
unni, mat, gríni, heilsu, sögunni og börn-
um. I Vikunni er einnig að finna viðtöl,
krossgátur, handavinnu ogslúður um
stjörnurnar og ýmislegt smálegt sem gam-
an er að skoða í nœði. Mig langar þó sér-
staklega að benda lesendum á að í þessu
blaði hefst nýr leikur, Aldamótaleikurinn,
sem gefur heppnum lesanda möguleika á
að komast í sannkallaða ævintýraferð á
nýrri öld. Það vœri ekki ónýtt að láta
liringja í sig milli jóla og nýárs og tilkynna
sér að maður œtti inni ferð fyrir tvo til
Kúbu!
Njóttu Vikunnar
Jóhanna Harðardóttir
Ritstjóri Jóhanna G. Harðardóttir vikan@frodi.is
Útgefandi Fróði Seljavegur 2, Sími: 515 5500 Fax:
515 5599 Stjórnar-formaður Magnús Hreggviðsson
Aðalritstjóri Steinar J. Lúðvíksson Sími: 515 5515
Framkvæmdastjóri Halldóra Viktorsdóttir Sími: 515
5512 Blaðamenn: Steingerður Steinarsdóttir, Hrund
Hauksdóttir og Margrét V. Helgadóttir. Auglýsinga-
stjórar Anna B. Þorsteinsdóttir og Ingunn B.
Sigurjónsdóttir Vikanaugl@frodi.is Grafískur
hönnuður Guðmundur Ragnar Steingrímsson Verð
í lausasölu 459 kr. Verð í áskrift ef greitt er með
greiðslukorti 344 kr. pr eintak . Ef greitt er með
gíróseðli 389 kr pr. eintak. Litgreining og
myndvinnsla Fróði Unnið í Prentsmiðjunni Odda hf.
Öll réttindi áskilin varðandi efni og myndir
Áskriftarsími:
515 5555
Steingerður Hrund Margrét V. Ingunn B. Anna B.
Steinars- Hauksdóttir Helgadóttir Sigurjóns- Þorsteins-
dóttir blaðamaður blaðamaður dóttir dóttir
blaðamaður auglýsinga- auglýsinga-
stjóri stjóri
Guðmundur
Ragnar
Steingrímsson
Grafískur
hönnuður