Vikan - 02.11.1999, Síða 22
Texti: Steingerður Steinarsdóttir
Léttu lundina í vetur
Skammtlegisþunglyndið
hrakið á braut
Qrfáar staftreyndir um
skammaegis[ninglynai
• Margir þeirra sem þjást af skammdegisþunglyndi taka
Prozac eða önnur þunglyndislyf á veturna. Ef einkennin
eru mjög mikil þarf oft að taka lyf rneð ljósameðferð.
• Ljósameðferð nægir til að lækna skammdegisþunglyndi í
85% tilvika.
• Grikkir og Rómverjar notuðu ljósameðferð til að lækna
skammdegisþunglyndi.
• í mörgum tilvikum getur samtalsmeðferð hjá sálfræðingi
verið áhrifarík og slegið á skammdegisþunglyndi.
mun minna magn af
serótóníni í heilanum en
hinir. Eðlilegt er að
serótónín magnið sé breyti-
legt eftir árstíðum og það
minnkar hjá öllum á veturna
vegna þess að ljós hefur
áhrif á serótónínframleiðsl-
una. Við höfum líkt og líf-
fræðilega klukku sem flýtir
sér eða hægir á sér eftir
breytilegu ljósmagni í um-
hverfi okkar.
Ljós hefur einnig áhrif á
framleiðslu svefnhormóns-
ins melatóníns þannig að
þegar rökkvar eykst fram-
leiðsla þess en minnkar um
leið og birtan fer að umlykja
okkur. Þetta skýrir hvers
vegna fólk sefur gjarnan
meira í skammdeginu en
ella.
Þeir sem þjást af skamm-
degisþung-
lyndi sækja
einnig meira í
feitan mat og
sykur en hin-
ir. Serótónín-
framleiðslan
eykst þegar
borðaður er
orkuríkur
matur og þess
vegna borðar
fólk gjarnan
súkkulaði eða
önnur sætindi
þegar
serótónín
magnið
minnkar.
Aukningin er
hins vegar
ekki varanleg og oft verður
þunglyndið verra þegar fitan
hverfur úr líkamanum svo
skammdegisþunglyndi fylgir
oft þyngdaraukning og
breytingar á mataræði til
hins verra.
Nýlega fóru menn að
beita ljósameðferð til að
sporna við skammdegis-
þunglyndi. Hún felst í því að
fólk situr í allt að fjóra tíma
á dag, flestum nægir þó mun
minna, framan við ljós sem
er fjórfalt sterkara en venju-
legt heimilisljós. Ljósið
verður að skína beint inn í
augu sjúklingsins annars
hefur það lítil áhrif. Hægt er
að fá sérhönnuð ljósabox til
þess arna og til er útbúnað-
ur, líkt og skyggni yfir aug-
un, til að fólk geti hreyft sig
meðan á meðferðinni stend-
ur. Flestir finna mikinn mun
á sér eftir aðeins þrjá til
fjóra daga og margir sem
hafa notað þessa aðferð eru
orðnir jafnléttir í skapi á
veturna og á sumrin.
Hjálpaðu þér sjálf
• Skipuleggðu líf þitt þannig að álagið á þig minnki yfir
vetrartímann. Reyndu að fresta öllum stórum fram-
kvæmdum til vors. Það er mikill misskilningur að ann-
ríki slái á þunglyndi, þvert á móti eykur það á kvíðann
og streituviðbrögð líkamans rninnka serótínframleiðsl-
una enn frekar.
• Farðu út eins oft og þú getur yfir daginn á meðan birtu
nýtur. Ef þú verður að halda þig innan dyra reyndu þá
að halda þig eins nálægt gluggunum og þú getur.
• Reyndu að ljúka öllu af að deginum til og notaðu kvöld-
in til að slaka á. Sjáðu til þess að þú fáir alltaf nægan
svefn.
• Neyttu matar sem er góður fyrir heilsuna. Grænmeti,
pasta, gróft brauð og ferskir ávextir er alveg tilvalið
mataræði fyrir þá sem vilja auka serótónínframleiðslu
heilans á náttúrulegan hátt og draga úr þunglyndi.
argir fara að
finna fyrir
skammdegis-
þunglyndi
strax í september og kvíði
fyrir vetrarmánuðunum sest
að þegar fyrstu haustvind-
arnir taka að blása og
grámyglulegt haustregnið
leggst yfir með tilheyrandi
þoku. Serótónín, taugaboð-
efnið margumrædda, er í því
tilfelli, eins og svo mörgum
öðrum, orsakavaldur. Þeir
sem þjást af þunglyndi hafa