Vikan - 02.11.1999, Blaðsíða 25
gera þér far um að vera bæði
kurteis og almennileg við
hann. En það verður að vera í
einlægni. Yfirmönnum líður
vel í nálægð starfsmanna sem
lætur þeim líða vel. Því skaltu
hiklaust hrósa yfirmanni þín-
um ef hann kemur á framfæri
góðri hugmynd og ef hann að-
stoðar þig með eitthvað, þá
skaltu þakka honum hjálpina.
Það að sýna yfirmanni sínum
traust, kurteisi og áhuga er
langt frá því að vera sleikju-
gangur. Yfirmenn, rétt eins og
aðrir starfsmenn fyrirtækja,
þurfa á hvatningu og stuðningi
að halda. Yfirmenn hafa líka
þarfir sem byggja á andlegum
og félagslegum stuðningi
starfsmanna þeirra og þeir eru
oft áhyggjufullir og fullir efa-
semda um ákvarðanir eða
framkvæmdir sínar. Vertu því
óhrædd við að sýna yfirmanni
þínum stuðning. En það sama
gildir um þá sem eru þér lægra
settir á vinnustað, þeir þurfa
líka á hvatningu að halda. Því
skaltu af einlægni hvetja og
hrósa yfirmanni þínum, sem
og öðrum starfsmönnum, þeg-
ar það á við.
Goðsögn5
Þú verður að vera
liðsmaður
Að sjálfsögðu skaltu ekki
taka upp þann ósið að
baknaga samstarfsfólk þitt en
gættu þess að verða ekki
svokölluð „já-manneskja."
Segðu það sem þér sjálfri
finnst um viðkomandi mál,
stattu fast á þínu og ekki
breyta skoðunum þínum í
þeim tilgangi einum að vera
sammála hópnum. Ef þú ert
með góða hugmynd fyrir fyrir-
tækið, sama á hvaða sviði
rekstursins það er, þá skaltu
koma henni á framfæri upp á
eigin spýtur. Aldrei breyta
skoðun þinni til þess að stugga
ekki við samstarfshópnum.
bara til þess að halda öllum
ánægðum. Samstarfshópur er
ekkert annað en ákveðinn
fjöldi ólíkra einstaklinga sem
hafa örugglega margt mis-
munandi til málanna að leggja
og því skaltu forðast að sam-
þykkja allt orðalaust. Láttu
Ijós þitt skína. Hópvinna verð-
ur hvað mest skapandi þegar
hugmyndaflæði einstakra ein-
staklinga fær að njóta sín.
Hafðu líka hugfast að hópar
fá aldrei stöðuhækkun. Það fá
hins vegar stakir starfsmenn.
Goðsögn6
Láttu þá aldrei sjá þig
svitna
Þegar þú ert að kikna undan
alltof miklu vinnuálagi þá get-
urðu haldið uppi ákveðinni
ímynd sem gerir það að verk-
um að þú lítir út fyrir að vera
afslöppuð og með allt þitt á
hreinu. Svo ertu ein tauga-
hrúga undir dragtinni, meikinu
og brosinu. Undir slíkum
kringumstæðum er mun
heppilegra að slaka aðeins á,
brjóta odd af oflæti sínu og
biðja um aðstoð. Ef þú ert
með of mikla vinnu þá aukast
líkurnar á því að þú gerir mis-
tök eða skilir frá þér verr unnu
verki en ella. Stundum gera yf-
irmenn sér ekki grein fyrir um-
fangi vinnu þinnar og því getur
verið nauðsynlegt að gera
þeim grein fyrir því. Það sýnir
góða dómgreind að skýra slík
mál fyrir yfirmanni sínum og
hann kann örugglega að meta
það. Ef hann veit stöðuna, þá
getur hann gert ráðstafanir til
þess að minnka vinnuálagið á
þér með því að auka fjölda
starfsmanna eða dreifa ábyrgð
og umfangi vinnunnar á fleiri
samstarfsmenn þína.
Goðsögn7
Þú verour að eiga
fyrirmynd.
Það þarf ekki að saka að
eiga sér fyrirmynd úr
starfsgrein þeirri sem þú
starfar við og sem þig
langar að líkjast en þú
kemst vel af án þess. Þú
minnkar nefnilega mögu-
leika þína á þyrnum
stráðri framabrautinni ef
þú rembist við að herma
eftir ákveðinni persónu.
Öllu skynsamlegra er að
temja sér sinn eigin stíl en
hafa augun jafnframt opin
fyrir ákjósanlegum eigin-
leikum í fari annarra og
tileinka sér svo það besta
frá hverjum og einum.
Með því öðlast þú
ákveðna breidd í starfi og
það kemur örugglega til
með að skila betri árangri
en að einblína á eina
manngerð. Að auki er nauð-
synlegt að koma sér upp
tengslum við marga aðila sem
tengjast á einhvern hátt inn á
starfssvið það sem um ræðir
því það eykur líkurnar á að
þér verði boðið á mikilvæga
fundi og ýmsar uppákomur,
sem mun vafalaust koma sér
vel í starfi þínu.
Goðsögn 8
Ekki eyða of miklum
peningum í kostnað.
Gerðu það. Allir aðrir eyða
peningum í kostnað, sérstak-
lega karlmenn. Konur eru oft
smeykar við að eyða pening-
um á þennan hátt en þær
skyldu hafa hugfast að það er
stundum nauðsynlegt að dekra
svolítið við viðskiptavininn.
Með því að bjóða viðskipta-
vini á huggulegan veitingastað
eða gefa honum góð sæti í
leikhúsinu, eru allar líkur á að
þú sért að skapa velvilja og
leggja grunn að ánægjulegu og
traustu viðskiptasambandi.
Risna, eða kostnaður verk-
taka, er einmitt hugmyndin að
baki þessu. Ef þú notfærir þér
þetta ekki á réttan hátt, þá
áttu á hættu að yfirmönnum
þínum finnist þú hafa lítið
sjálfsöryggi og þú gerir
ósjálfrátt lítið úr sjálfri þér.
Goðsögn 9
Sendu staðlaðar
atvinnuumsóknir
út um allt.
Þú skalt forðast að senda
„curriculum vitae" (ferilskrá
þína) út um allar trissur. Ár-
angursríkast er að velja sér
ákveðinn fjölda af fyrirtækjum
sem þú hefur áhuga á að vinna
hjá og sníða ferilskrána að
stakki þeirra. Þú skalt ávarpa
viðtakanda umsóknar þinnar
með fullu nafni en það ber
þess merki að þú hafir lagt
það á þig að komast að því
hver sé starfsmannastjóri við-
komandi fyrirtækis. Ef feril-
skrá þín og atvinnuumsókn er
of almenns eðlis er hætt við
því að hún endi í ruslinu, burt-
séð frá öllum prófgráðum og
meðmælum. Auk þess er
skynsamlegt að geta þess sér-
staklega hvers vegna þú hafir
áhuga á að vinna einmitt hjá
þessu tiltekna fyrirtæki en það
sýnir einlægan áhuga.
Vikan 25