Vikan - 11.01.2000, Blaðsíða 39
Gunnar og Halla við sóniabátinn scm Gunn-
ar gcrir út hluta ársins. Þá fcllur það í hlut
Höllu að sitja við tvær sauniavclar til skiptis.
Einungis brut af því scm Gunnar
ug Halla cru að gcra. IJtsauniur í
handklæði ug skyggnishúfu sem ug
llíshúfu sauniaða af Hiillu.
Tilviljun eins og svo
margt annað
Þau hjónin segja frá því að
þau ráku nýlenduvöruverslun á
Reyðarfirði í 18 ár, í húsinu sern
þau búa og hýsir nú saumastof-
una og um átta ára skeið hafi
þau rekið bakarí samhliða
verslunarrekstri sem þau hafi
byggt upp frá grunni. Þau héldu
því áfram rekstri bakarísins
þegar þau lokuðu versluninni
og bökuðu því brauð og kökur í
12 ár ofan í íbúa Reyðarfjarðar
en þá tók trillusjómennska við
hjá Gunnari og Halla var á milli
starfa. Á þeim tíma sat hún ör-
lítið við saumavélina en það
varð til þess að vinkona þeirra
hjóna hvatti hana til að hefja
saumaskap á flísfatnaði. Halla
var vön saumaskap og hafði
alltaf haft gaman af honum og
þannig að vinkonan var tekin á
orðinu.
Gunnar og Halla duttu því
inn í saumaskapinn fyrir algera
tilviljun eins og þau segja sjálf
en sala á fimm flíspeysum á úti-
markaði um verslunarmanna-
helgi fyrir þremur árum var
upphafið að miklu
stærra verkefni
sem í dag tekur ,
allan þeirra tíma.
En þó ekki alveg
allan því Gunnar ger-
ir út sómadagbát hluta
ársins og þá fellur það í
verkahring Höllu að sitja við \
tvær saumavélar til skiptis,
aðra til að sauma flísfatnaðinn
og hina til að sauma út.
Saumavél á góðu
jeppaverði
Útsaumsvélin er engin smá-
smíði og sýnishorn af því sem
þar hefur verið gert vitnar ein-
ungis um brot af því sem hægt
er að sauma. „Saumavélin var á
góðu jeppaverði,“ eru orð
Gunnars þar sem hann situr við
vélina og saumar blómamynst-
ur og nafn í handklæði. „Enda
köllum við hana jeppann okk-
ar.“ Halla vill helst ekki koma
nálægt útsaumsvélinni þar sem
hún hefur það mikið að gera
við að sauma flísfatnaðinn.
Margir takkar, stór skjár, tölvu-
tenging og notkun forrita kalla
líka á tíma til að setja sig inn í
allt það sem vélin hefur upp á
að bjóða.
Gunnar brasar mikið í kring-
urn vélina og nýlega fékk hann
nýtt forrit í hana sem fjölgar
enn frekar möguleikum á út-
saumi. Nöfn, blórn. dýr og
menn í óteljandi myndum geta
birst í rúmfötum, handklæðum,
húfum, fatnaði, baðsloppum og
diskaþurrkum svo eitthvað sé
nefnt. „Það er lygilegt hvað vél-
in getur gert en mér finnst nú
skemmtilegra að fiska en sitja
við saumavélina," segir hann
hógvær og konan hans brosir
bara að honum.
Halla segir að þau saumi ein-
göngu eftir pöntunum og ekki
vinnist tími til að sauma fyrir
verslanir þrátt fyrir hjálp sem
þau fái við saumaskapinn á
álagstímum. „Við hittum á góða
atvinnugrein á sínum tíma og
vorum bara ótrúlega heppin að
detta inn í þetta. Við höfum
nánast ekkert þurft áð auglýsa
okkur og við verðum vör við
áhuga fólks á okkar
vinnu en um fimm
hundruðmanns
hafa heimsótt
heimasíðuna okkar á
internetinu frá því í
apríl. Við sem héld-
um fyrsta árið að
handklæði gengju
ekki endalaust!"
Vikan 39
Gunnar og Halla
láta sér fátt fyrir
brjósti brenna. í
þrjú ár hafa þau
setið við sauma og óhætt er að
segja að hafi mælst vel fyrir. Að
koma inn á saumastofuna
þeirra sannar að þau hafa mikið
að gera því strangar af flísefn-
um hylja heilan vegg og hillur
eru þaktar af handklæðum og
ýmsu öðru sem saumað er út í.