Vikan


Vikan - 11.01.2000, Side 62

Vikan - 11.01.2000, Side 62
luuy luuouuy . Loksins er þessi frábæri og fjölskylduvæni veitingastaður kominn til Islands en liann hefur farið sigurför um heiminn. Góður og hollur matur, úrval drykkja, antik leikföng og minjagripir tengdir iþróttum og kvikmyndum eru helsta einkenni staðarins. Það er sérlega huggulegt að setjast við barinn og gæöa sér á gómsætum smáréttum og dreypa á Margarítu. Ruby Tuesday á íslandi er 510. staðurinn sem er opnaöur í heiminum en sá fyrsti í Evrópu. z:—- ==— Hlfe !!' ~j • * 'LJLJt 1 í 4 ■VU~" ... nýja Akra smjörlíkinu. KEA hefur hafið framleiðslu á smjörlíki sem hefur mun hagstæðari fitusamsetn- ingu en annað smjörlíki því það inniheldur minna en 1 % af transfitusýrum en það eru gleðifregnir fyrir þá sem er annt um heilsuna. Rannsóknir hafa sýnt að trans- fitusýrur hækka kólesteról í blóði svipað og mettaðar fitusýrur og auka því líkur á hjarta- og æðasjúkdómum. Þessar óheilsusamlegu fitusýrur myndast annars vegar þegar fita er hert og fljótandi olíu er breytt í harða fitu, og hins vegar myndast þær fyrir tilstilli baktería í meltingarvegi jórturdýra. Á nýrri öld er ekki úr vegi að við hugum að aukinni hollustu enda kom fram í nýlegri, evrópskri rannsókn að af 14 Evrópuþjóðum reyndist transfitusýru- neysla l’slendinga langhæst. Ástæða þess er fyrst og fremst talin vera vegna mis- munandi samsetningar smjörlíkis hjá þjóðunum og til þessa höfum við verið eftirbátar þeirra hvað þetta varðar. Nú er þessi lauflétta og bráð- skemmtilega gamanmynd loks komin á myndbandaleigurnar þar sem þau Hugh Grant og Julia Ro- berts fara á kostum í hlutverkum sínum. Söguþráðurinn er á þann veg að William Thacker (Grant) er óþekktur bóksali í Notting Hill hverfinu í London og sérhæfir sig í sölu ferðabóka. Anna Scott er hins vegar heimsfræg kvikmynda- stjarna sem er sífellt með Ijós- myndara og blaðamenn á hælun- um og á tæpast nokkurt einkalíf. Fyrir tilviljun kynnist hún bóksal- anum og með þeim takast tima- bundin kynni en sökum þess að heimar þeirra eru svo ólíkir er nær óhugsandi að þau hittist aftur. Gráglettni örlaganna lætur þó ekki að sér hæða og þau hittast á ný. Fljótlega kemur í Ijós að kynni þeirra eiga eftir að draga dilk á eftir sér.

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.