Vikan - 11.01.2000, Page 62
luuy luuouuy . Loksins er þessi frábæri og fjölskylduvæni veitingastaður
kominn til Islands en liann hefur farið sigurför um heiminn. Góður og hollur matur, úrval drykkja, antik
leikföng og minjagripir tengdir iþróttum og kvikmyndum eru helsta einkenni staðarins. Það er sérlega
huggulegt að setjast við barinn og gæöa sér á gómsætum smáréttum og dreypa á Margarítu. Ruby
Tuesday á íslandi er 510. staðurinn sem er opnaöur í heiminum en sá fyrsti í Evrópu.
z:—- ==— Hlfe
!!' ~j • * 'LJLJt 1 í 4 ■VU~"
... nýja Akra smjörlíkinu.
KEA hefur hafið framleiðslu á smjörlíki
sem hefur mun hagstæðari fitusamsetn-
ingu en annað smjörlíki því það inniheldur
minna en 1 % af transfitusýrum en það
eru gleðifregnir fyrir þá sem er annt um
heilsuna. Rannsóknir hafa sýnt að trans-
fitusýrur hækka kólesteról í blóði svipað
og mettaðar fitusýrur og auka því líkur á
hjarta- og æðasjúkdómum. Þessar
óheilsusamlegu fitusýrur myndast annars
vegar þegar fita er hert og fljótandi olíu er
breytt í harða fitu, og hins vegar myndast
þær fyrir tilstilli baktería í meltingarvegi
jórturdýra. Á nýrri öld er ekki úr vegi að
við hugum að aukinni hollustu enda kom
fram í nýlegri, evrópskri rannsókn að af
14 Evrópuþjóðum reyndist transfitusýru-
neysla l’slendinga langhæst. Ástæða þess
er fyrst og fremst talin vera vegna mis-
munandi samsetningar smjörlíkis hjá
þjóðunum og til þessa höfum við verið
eftirbátar
þeirra
hvað þetta
varðar.
Nú er þessi lauflétta og bráð-
skemmtilega gamanmynd loks
komin á myndbandaleigurnar þar
sem þau Hugh Grant og Julia Ro-
berts fara á kostum í hlutverkum
sínum. Söguþráðurinn er á þann
veg að William Thacker (Grant) er
óþekktur bóksali í Notting Hill
hverfinu í London og sérhæfir sig í
sölu ferðabóka. Anna Scott er hins
vegar heimsfræg kvikmynda-
stjarna sem er sífellt með Ijós-
myndara og blaðamenn á hælun-
um og á tæpast nokkurt einkalíf.
Fyrir tilviljun kynnist hún bóksal-
anum og með þeim takast tima-
bundin kynni en sökum þess að
heimar þeirra eru svo ólíkir er nær
óhugsandi að þau hittist aftur.
Gráglettni örlaganna lætur þó ekki
að sér hæða og þau hittast á ný.
Fljótlega kemur í Ijós að kynni
þeirra eiga eftir að draga dilk á
eftir sér.