Vikan


Vikan - 18.07.2000, Qupperneq 7

Vikan - 18.07.2000, Qupperneq 7
eigi að þurfa að greiða launa- hækkunina. Viðkvæðið er gjarn- an að ef við fáum hærri laun, þá þurfi að hækka leikskólagjöldin. Við segjum bara að allir eigi borga þessa þjónustu. Vonandi verður leikskólinn hluti af kerf- inu innan skamms og fólk á ekki að þurfa að borga fyrir hann, ekkert frekar en grunnskóla. Þá fyrst eiga öll börn jafnan rétt til leikskóla. Leikskólagjöld eru ekki það há í dag að flestallir geta leyft sér að hafa börnin sín í leikskóla, en það eru hópar í þjóðfélaginu sem minna mega sín og geta ekki haft börnin í leikskóla. Atvinnulaus- ir, nýbúar og þeir sem eru verst staddir fjárhagslega, byrja á að taka barnið úr leikskóla þegar þeir fara að skera niður útgjöld heimilisins. Það er ákveðin stefnumörkun að leikskólinn eigi að vera að kostnaðarlausu. Eins og staðan er í dag er verið að etja þessum tveimur hópum saman, leikskólakennurum og foreldr- um. Þegar kauphækkanir eru ræddar, er alltaf farið beint í vasa foreldranna sem við umgöng- umst og höfum samskipti við all- an daginn og eigum í samstarfi við. Það etur þessum hópum saman þegar vinnuveitandinn kemur og segir þetta. Það eru all- ir sammála um að það þurfi að borga hærri laun. Spurningin er hins vegar hvar eigi að taka pen- ingana. Fólk þarf líka að vera sammála um hvaðan eigi að taka þá. Það á virkilega eftir að reyna á þetta í næstu samningum. Mér finnst hópurinn hafa sýnt ótrú- lega þolinmæði en hún er ekki ótæmandi." Sífellt heyrast fregnir af því að stór hluti leikskólakennara sé að skipta um starfsvettvang og leik- skólarnir séu meira og minna mannaðir af ófaglærðu starfs- fólki. Hvernig er raunveruleg staða inni á leikskólunum? „Við höfum ekki nákvæmar kannanir og tölur en það sem við höfum í höndunum bendir til þess að á landsvísu séu 30-40% starfsmanna á leikskólunum fag- lærðir. Á Reykjavíkursvæðinu er hlutfallið ívið hærra, kannski á milli 40-50%. Þetta er líka dæmi- gerð kvennastétt, konurnar fara í barneignafrí og margar þeirra hafa stuttan starfsaldur. Flestar þeirra skila sér til starfa að út- skrift lokinni en svo þegar þær finna hversu krefjandi starfið er skipta margar um starfsvettvang.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.