Vikan


Vikan - 05.09.2000, Blaðsíða 4

Vikan - 05.09.2000, Blaðsíða 4
Kæri lesandi Mfkið skelfmg getur verið leiðinlegt að versla. Kannski er ég einfaldlega búin að versla yfir mig, það hlýtur að vera ein- hver ástœða fyrir því hversu mjög mér leiðist það. Auðvitað verð ég aðfara að kaupa í matinn reglulega eins og allir aðrii; sem halda heimili, en það er langt ífrá að mérfinn- ist það skemmtilegt. Stundum neyðist maður líka tii aðfara í búðir annarra erinda en því miður verð ég að viðurkenna að það erufáar verslanir á Reykjavíkursvœðinu sem ég hefhaft gaman afað koma inn íþótt undantekningarnar séu auðvitað til. Helstu undan- Verslunarleiði og angur tekningarnar eru litlar sér- verslanir þar sem vinnurfólk sem hefur vit á því sem það er að selja og þar sem örtröðin og stressið er ekki alla að drepa. Mér ofbauð endanlega um daginn þegar égfór inn í ágœta stórverslun, en þangað átti ég það fróma erindi að kaupa mér stól sem ég hafði séð þar nokkru áður ogfallið fyrir. Eftir að hafa gengið langa vegalengd (þetta erAFAR stór búð!)fann ég loks stólinn góða en þá var búið aðfjar- lœgja afhonum verðmiðann. Mig vantaði aðstoð. Eg kom auga á tvo stráka merkta versluninni en þeir voru á harðahlaupum eins og haus- lausar hœnur og rétt náðu að kasta einsatkvæðisorðum að þeim fjöldamörgu sem reyndu að ná tali afþeim. Að öllum líkindum hefði ekki dugað minna en snara að hœtti Lukku-Láka til að stöðva þá. Eftir nokkurt rápfann ég eins konar „afgreiðslustöð" þar sem ungur maður sat með st'ma í annarri hendi og penna í hinni. Það var augljóst að hann vann vel fyrir kaupinu sínu, því samtímis var hann að taka niður pöntun viðskipta- vinar, sem stóð fyrirframan hann, og gefa öðrum upplýs- ingar í gegnum í símann. Fjöidi fólks stóð og beiðfyrir framan manngreyið þegar ég kom og þarna stóðum við öll í hóp og biðum, mislengi þó, meðan blessaður maðurinn skrifaði afkappi og talaði í símann rjóður afstressi. Eftir drjúga bið fékk ég miða með númeri stólsins og verði og mér var sagt aðfara og borga, en síðan lœgi ieiðin út á lager þar sem égfengi gripinn af- hentan. Við kassann hófst enn ein bið- in meðan afgreiðslustúlkan reyndi árangurslaust að ná í aðstoð við að fylla á pokastandinn svo konan á undan mérþyrfti ekki að bera sokkahlaðann ífanginu út í bílinn sinn. En ég slapp út og eftir bíltúr, með tilheyrandi villu í leit að lagernum, gekk ég til næsta afgreiðslumanns í þessu ágœta ferli, ungs manns með heyrnartól í eyranu. Hann tók við miðanum, leit á hann og sagði svo nokkrar setningar sem ég botnaði hvorki upp né niður í! „Ha? Hvað segirðu?“ hváði ég eins ogfálki. Þá leit maðurinn á mig, eins og utan úr geimnum og sagði: „Eg er að tala í sím- ann. “ Egfékk stólinn minn. Þetta er fínn stóll og gott að sitja í honum en mig langar ekki í annan. Eg nenni ekki í svona búðir þar sem enginn má vera að því að sinna manni eins og manneskju. En við getum fagnað nýrri Viku. Ihenni er að fmnafullt afgóðu efiti eins og venjulega; viðtal við aðalhetjuna í kvennafótboltanum, textílkon- ur eru heimsóttar, fróðlegar greinar um skilnað, fóbíur, leghálskrabbamein og rifrildi. Vtkan bendir líka konum á ómögulega karla, leiðir til að komast áfram í vinnunni, t\’œr lífsreynslusögur eru í blaðinu, handavinna og svo mœtti lengi telja. En sjón er sögu ríkari, flettu blaðinu ogfinndu eitt- hvað við þitt hœfi og ... ... njóttu Vikunnar Jóhanna Harðardóttir Ritstjórar: Jóhanna G. Harðardóttir og Hrund Hauksdóttir, vikan@frodi.is. Útgefandi: Fróði ht. Seljavegi 2, sími: 515 5500 fax: 515 5599. Stjórnarformaður: Magnús Hreggviðsson. Aðalritstjóri: Steinar J. Lúðviksson, simi: 515 5515. Framkvæmdastjóri: Halldóra Viktorsdóttir, simi: 515 5512. Blaðamenn: Steingerður Steinarsdóttir, Gunnhildur Lily Magnúsdóttir, Guðriður Haraldsdóttir og Margrét V. Helgadóttir. Auglýsingastjórar: Ingunn B. Sigurjónsdóttir og Sigriður Sigurjónsdóttir vikanaugl@frodi.is. Grafískur hönnuður: Guðmundur Ragnar Steingrímsson. Verð í lausasölu 459 kr. Verð í áskrift ef greitt er með greiðslukorti 344 kr. á eintak. Ef greitt er með gíróseðli 390 kr. á eintak. Litgreining og myndvinnsla: Fróði hf. Unnið i Prentsmiðjunni Odda hf. Öll réttindi áskilin varðandi efni og myndir. Áskriftarsími: 515 5555
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.