Vikan


Vikan - 05.09.2000, Blaðsíða 15

Vikan - 05.09.2000, Blaðsíða 15
ið sambandinu áfram. Hann elskaði mig ekki nógu mikið. Hann vildi vera heiðarlegur, þar sem hann vissi að ég bæri miklu sterkari tilfinningar til hans. Ég sat og starði á hann. Ég hélt að mér hefði misheyrst. Ég hafði staðið í þeirri trú að ég væri búinn að finna mann- inn í lífi mínu og nú vildi hann ekkert með mig hafa. Það gat einfaldlega ekki verið satt. Þetta hlaut að vera vondur draumur. En þetta var satt. Uppsögn- in kom eins og þruma úr heið- skýru lofti og áfallið var gífur- legt. Ég kom ekki upp einu einasta orði, tók töskuna mína og jakkann og flýtti mér út. Þá fyrst komu tárin. Við kynntumst á sameigin- legum vinnustað okkar. Ég hafði verið ástfangin af hon- um í marga mánuði áður en hann tók eftir mér. Við byrj- uðum að vera saman og ég var yfir mig hamingjusöm. Það var erfitt að halda áfram að hitta hann daglega í vinnunni. Samt fannst mér gott að vera nálægt honum. Ég var viss um að einn daginn myndi hann uppgötva að hann gæti ekki lifað án mín. A hverjum morgni eyddi ég löngum tíma fyrir framan spegilinn og lagði allt mitt stolt í að líta vel út. Ég vildi ekki að hann sæi hvað mér leið illa. Fyrstu vikurnar vék ég varla frá símanum. „Hann hlýtur að hringja," hugsaði ég á hverju kvöldi með sjálfri mér. Hann hringdi aldrei. I vinnunni hélt ég í vonina að hann kæmi til mín og bæði mig að koma aftur. Ég þorði ekki að tala við hann að fyrra bragði. Að lokum var svo komið að ég gat varla hugs- að mér að vera í sama her- bergi og hann. Alltaf þegar ég sá hann þyrmdi yfir mig og mér var flökurt. Ég byrjaði á því að fara að skokka á hverjum degi. Ég tll llilllllliii ii liii !.:*i»ti'ij»]ijj'"*;|| Myndir er svið- sett af Hugleik komst að því að það var besta leiðin til þess að slaka á og losna við flökurleikann. Hann hafði alltaf sagt að hann kynni betur við konur sem hefðu eitthvert hold utan á sér og að hans mati væri ég fullkomin. Flökurleikinn og skokkið gerðu það að verkum að ég léttist um tíu kíló á þremur mánuðum og ég var að verða að engu. Stuttu seinna fór hann að hrósa mér fyrir hvað ég liti vel út. Ég tók því þannig að kannski væri hann loksins til- búinn að fá mig aftur. Það var ennþá erfiðara að gleyma honum meðan hann hélt áfram að gefa mér undir fót- inn. Ég trúði vinkonum mínum fyrir raunum mínum. Þær hlustuðu á mig gráta og hlust- uðu á sömu sögurnar aftur og aftur. Það var mikilvægt að hafa einhvern að tala við. Mig dreymdi hann stöðugt og draumana reyndi ég að ráða þannig að þeir væru að segja mér að vera þolinmóð, að allt yrði gott aftur. Ég skrifaði dagbók og fyllti síðu eftir síðu af minningum um hann. Höfnunartilfinning er hræðileg. Ég missti allt sjálf- traust. Allt sem ég gerði, gerði ég með það í huga að fá hann aftur. Ég var ekki með sjálfri mér. Hálfu ári eftir að hann sleit sambandinu hitti ég hann í veislu með annarri konu. Ég fór heim alveg eyðilögð. Það leið heilt ár áður en ég hætti að hugsa um hann daglega. í dag myndi ég hugsa mig tvisvar um áður en ég stofn- aði til alvarlegs sambands. Ég gæti ekki hugsað mér að ganga aftur í gegnum svona mikla sorg. Þegar ég lít til baka finnst mér fáránlegt hvað ég eyddi miklum tíma og mikilli orku í að syrgja hann. Hann var alls ekki þess virði. Vikan 15
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.