Vikan


Vikan - 05.09.2000, Blaðsíða 7

Vikan - 05.09.2000, Blaðsíða 7
þjálfa síðan 1989 og það eru mjög sterkir flokkar og góðar, upp- rennandi stelpur að koma upp. Svo er bara spurningin hvort þær skili sér upp í meistaraflokk." Stelpur virðast frekar hætta að stunda íþróttir en strákar þegar þær komast á unglingsárin. Er mikið brottfall í kvennabolta- num? „ Það er alltaf eitthvað um það að stelpur hverfi úr bolta- num á unglingsárunum. Þá er svo margt sem togar í þær. Stundum eru meistaraflokkarnir ef til vill mjög sterkir og þær eiga erfitt með að komast í liðið. Kvenfólk er líka oft í þessu út af félags- skapnum og þær nenna ef til vill ekki að fara í önnur lið heldur hætta alveg. í gegnum tíðina hef- ur ekki verið neinn rosalegur meðbyr í kvennaíþróttum en það er að breytast og ég á alveg von á því að brottfallið fari minnk- andi í framtíðinni. Þær stelpur sem halda áfram eru þær sem hafa mikinn og einlægan áhuga á knattspyrnunni." segir Helena ákveðin. Sjálf fór hún í KR þeg- ar Víkingsliðið var lagt niður árið 1985 og hefur spilað með þeim síðan ef undan er skilið sumarið 1992 þegar sem hún lék með Skaganum. Eins oð beljur á svelli Helena hefur verið mjög sigur- sæl í boltanum og hefur fjórum sinnum unnið íslandsmeistaratit- ilinn og tvisvar sinnum orðið bik- armeistari. KR-ingar voru mjög sigursælir á 100 ára afmæli sínu í fyrrasumar og unnu tvöfalt bæði í kvenna- og karlaboltanum. „Það er frábært að vera KR-ing- ur í dag,“ segir hún og brosir breitt. „Kvennaliðið hefur orðið íslandsmeistari síðastliðin þrjú sumur og auðvitað stefnum við á að bæta fjórða titlinum í safnið en það er á brattann að sækja. Deildin hefur sjaldan verið eins jöfn og núna. Þrjú lið eru í bar- áttunni um íslandsmeistaratitil- inn, Breiðablik, Stjarnan og KR. Við KR-stelpur munum síðan bítast við Blikana um bikarmeist- aratitilinn í september og við ætl- um að sjálfsögðu að landa þeim titli.“ Hún segir að það sé ekki nein pressa á þeim eftir afmælisárið Helena hefur verið á fullu í kvenna- fótboltanum í rúman hálfan annan áratug og oft hampað titlum. „Nú stefna þær stelpur sem ætla sér eitthuað auðvitað á landsliðið og eftir stúdentspróf er möguleikí fyrír þær á að komast í skóla til Bandaríkjanna á styrk. Það er eitthvað sem maður uissi ekki einu sinni að væri til fyrir nokkrum árum. i dag er líka möguleiki á að komast í atvinnumennsku. Ég óska þess stundum að ég væri yngri og með báða fætur í lagi.“
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.