Vikan - 05.09.2000, Blaðsíða 60
Líður illa í skólanum
0u
Kæri Póstur.
Ég er fimmtán ára og er að byrja í skól-
anum aftur. Ég er búin að kvíða fyrir því
í allt sumar og núna veit ég ekki hvern-
ig ég á að fara að. Mér leiðist svakalega
í skólanum og finnst mér ganga illa þar
og ég veit að allir aðrir í kringum mig eru
sömu skoðunar þótt þeir segi það ekki.
Ég á tvær eldri systur, þeim hefur alltaf
gengið vel í skóla og ég veit að ég er
miklu minni námsmaður en þær. Um-
sjónarkennarinn í bekknum mínum
„horfir í gegnum mig“ og mér finnst ég
eiginlega vera ósýnileg í skólanum því ég
á fáa vini þar. Ég vil ekki hætta í skól-
anum en ég vildi óska að mér liði ekki
svona illa þar. Hvað get ég gert til að
láta mér líða betur?
A.K.
Kæra A.K.
Ég sé á bréfinu þínu að þú ert vel gef-
in og hugsandi stúlka, en með alltof lágt
sjálfsmat. Ég veit auðvitað ekki hvort þú
býrð við stöðugan samanburð við syst-
ur þínar (annaðhvort frá sjálfri þér eða
öðrum) eða hvort eitthvað annað er að
angra þig, en þú ert greinilega að draga
sjálfa þig niður með því að telja þér trú
um að þú sért eitthvað verri en aðrir.
Skólinn er auðvitað ekki notalegur
staður fyrir þá sem eru með minnimátt-
arkennd og feimnir og þess vegna líður
þér illa. Þú verður að brjóta þér leið út
úr þessari einangrun með því að skoða
sjálfa þig með jákvæðu hugarfari og
hætta að bera þig saman við aðra (t.d.
systur þínar). Þú ert sjálfstæð ung kona
og nógu skýr til þess að leita þér hjálp-
ar með því að skrifa þetta bréf og þess
vegna ættir þú vel að geta komið auga á
alla þína kosti - því þá hefur þú svo sann-
arlega!
Námshæfileikar hafa ekkert með það
að gera hvernig þér reiðir af í lífinu. Það
er styrkur þinn og lífsþróttur sem ræð-
ur því og þú getur mótað þetta tvennt
sjálf.
Hafðu engar áhyggjur af því þótt þér
finnist einhver „horfa í gegnurn þig“.
Sumt fólk á erfitt með að gefa af sjálfu
sér, sérstaklega þeim sem eru í stöðugri
sjálfsvörn eins og þú. Ekki byggja líf þitt
á því hvað öðrum finnst. ÞÚ ert sú mann-
eskja sem skiptir
mestu máli í þínu lífi og þú
átt að vera góð við þá
manneskju og láta
hana njóta sann-
mælis. Byggðu upp
hæfileik-
ana og ja-
kvæðu þættina í fari þínu
og hættu að hafa áhyggjur af vinsæld-
um þínum. Þær koma af sjálfu sér þegar
þú ert farin að skilja hversu einstök og
frábær þú ert.
Spurningar má
senda til „Kæri
Póstur“ Vikan,
Seljavegi 2, 101
Reykjavík. Farið er
með öll bréf sem
trúnaðarmál og
þau birt undir
dulnefni.
Rós Vikunnar að
þessu sinni fær Guðný
Tómasdóttir, Brúna-
stöðum 73, en það eru
tveir ungir menn sem
senda henni þessar
rósir með svohljóð-
andi kveðju:
Okkur langar að stinga upp á því að Guðný, frænka okkar, fái rós Vik-
unnar. Hún er alltaf svo góð að passa okkur þegar mamma þarf að skreppa
eitthvert, t.d. með stóra bróður til læknis, niður í bæ eða í klippingu. Alltaf
er hún boðin og búin að gæta okkar bræðranna, enda erum við svo góð-
ir og þægir.
Með kærri kveðju og þökk,
Arnar Máni og Daníel Freyr Rúnarssynir í Fróðengi 10
látið hlómin tala
Þekkir þú einhvern sem á skilið að
fá rós Vikunnar? Ef svo er, hafðu þá
samband við „Rós Vikunnar,
Seljavegi 2,121 Reykjavík“ p \.s
og segðu okkur hvers ^ .J[
vegna. Einhver heppinn
verður fyrir valinu og tS§§í
fær sendan glæsilegan £ I
rósavönd frá
GRÆNUM MARKAÐI. W'
60 Vikan