Vikan


Vikan - 05.09.2000, Blaðsíða 26

Vikan - 05.09.2000, Blaðsíða 26
Ognvaldur kvenna Krabbamein er ógnvaldur sem allir ótt- ast. Leghálskrabbamein er næstal- gengasta krabbameinið sem herjar á konur og bað eina sem unnt er að greina á forstigi með leit. Líkurnar á bví að koma í veg fyrir leghálskrabba- mein hjá konum eru bví mjög góðar ef bær fara reglulega í skoðun. S Arið 1964 hóf Krabbameins- félag íslands markvissa leit að frumubreytingum í leg- hálsi hjá íslenskum konum í þeim tilgangi að greina sjúkdóminn á forstigi. í dag koma árlega um þrjá- tíu þúsund íslenskar konur í slíka leita annaðhvort hjá Krabbameinsfélaginu, sér- fræðingum eða um heilsu- gæslustöðvar, en allar kon- ur á aldrinum 20-69 ára eru boðaðar í leghálskrabba- meinsleit á tveggja ára fresti. Greining sjúkdóms- ins á forstigi hefur leitt til þess að nýgengi leg- hálskrabba hefur fallið um 67%. Dánartíðni þeirra sem greinast með krabba- mein í leghálsi hefur fallið um 76% þar sem um tveir þriðju hlutar þessara kvenna greinast vegna leit- arinnar svo fljótt að mein- ið er ekkert farið að dreifa sér út fyrir leghálsinn. Með því að mæta reglulega til skoðunar geta konur því minnkað verulega hættuna á því að fá leghálskrabba- mein eða að deyja af völd- um þessa sjúkdóms þar sem umtalsvert meiri lík- ur eru á að hægt sé að lækna sjúkdóminn ef hann er greind- ur nógu snemma. Að sögn Kristjáns Sigurðssonar, yf- irlæknis á Leitarstöð Krabbameinsfé- lags íslands, greinast um 4% af þeim sem koma í leit, eða um 1400 íslensk- ar konur á ári, með frumubreytingar sem geta með tímanum ef ekkert er að gert leitt til leghálskrabbameins. „Það er talið sannað að frumubreyt- ingarnar stafi af veiru sem nefnist HPV (Human papilloma virus) og smitast í yfirgnæfandi meirihluta tilfella með samförum.Fjórðungur kvenna á frjó- semisaldri hefur þessa veiru í sér, en lít- ill hluti þeirra greinist með forstigs- breytingar. í flestum tilfellum vinnur ónæmiskerfi líkamans á veirunni. Kona sem mætir reglulega í skoðun og aldrei hafa fundist neinar forstigs- breytingar hjá er í mjög lítilli hættu að fá leghálskrabbamein," segir Kristján. Bóluefni gegn HPV-veirunni Þeim konum sem greinast með leg- hálskrabbamein fer sífellt fækkandi, þökk sé leitinni. „I dag greinast í kring- um 16-20 konur á ári. Flestar eru ein- kennalausar og greinast með sjúkdóm- inn á 1. stigi en þá er sjúkdómurinn takmarkaður við leghálsinn. Þær sem greinast á efri stigum eru í flestum til- vikum konur sem ekki hafa mætt reglulega í skoðun eða aldrei mætt. Forstigsbreytingum hefur hins vegar fjölgað, einkum meðal ungra kvenna, en það er talið tengjast frjálsari kyn- lífshegðun en áður. Það er því mjög mikilvægt að ungar konur mæti í þessa leit. Konur eru misduglegar að mæta, sérstaklega á Reykjavíkursvæðinu. Það er einnig mikilvægt að þær konur sem greinast með forstigsbreytingar taki það alvarlega og fylgi fyrirmæl- um um eftirlit og meðferð,“ segir Kristján ákveðinn. Nýlega var fundið upp bóluefni sem hugsanlega er hægt að nota gegn HPV- veirunni sem veldur frumubreytingum í leghálsi. Það er skaðlaust og óhætt að nota á manneskjur. „í bóluefninu er mótefni gegn veirunni og það kemur í veg fyrir að hún nái að valda skaða. Fyrirhugað er að hér á landi fari af stað rannsókn haustið 2001 sem er liður í alþjóðlegri rannsókn á þessu bóluefni og mun prófa hversu vel gengur að nýta þetta bóluefni til þess að draga úr áhættunni á smiti,“ segir Kristján. 26 Vikan Texti: Unnur J ó h a n n s d ó tt i r
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.