Vikan - 05.09.2000, Blaðsíða 10
Allt frá bjóðveldisöld og langt fram á nítjándu öld uar vaðmál aðalútflutningsvara ís-
lendinga og skipaði að buí leyti sama sess og fiskurinn gerir nú. Góður uefarí uar pá
eftirsottur vinnukraftur og pað voru frekar karlmenn en konur sem sinntu vefnaði-
num. Konur tóku Píns vegar við voðinni, lítuðu hana og sniðu og saumuðu úr henni
flíkur. Nú er öldin önnur og íslenskar konur eru í miklum meirihluta peirra sem
stunda textfllist. Þær binda sig ekki við að vefa úr íslenskri ull, efni, litir og hug-
myndir gefa óendanlega möguleika og pað sem hér sést jafnast fyllilega á við pað
fallegasta sem býðst hjá textíllistapjóðum eins og Frökkum og ítölum. Vikan brá sér
á nokkur textflverkstæðí og gallerí í Reykjavík og kannaði pað sem par er finna.
Guðlaug Halldórsdóttir ræður
ríkjum í Má mí mó og hún er þeg-
ar orðin vel þekkt fyrir fislétt og
falleg gluggtjöld með fínlegu
mynstri sem minna á kniplinga-
gluggtjöld í Miðjarðarhafslönd-
um. Hún er hrifin af flaueli og
þyngri efnum líka og vinnur
sömuleiðis gluggatjöld úr þeim.
Púðar með helgimyndum frá
henni hafa einnig verið vinsælir
en það sérstaka við þá er að
myndirnar eru líkt og máðar eða
eins og einhvers konar móða hafi
lagst yfir þær. Þetta gefur þeim
ævafornt yfirbragð og minnir
sannarlega á að efniviðurinn er
oft sóttur í margra alda gamlar
myndir og málverk. I Má mí mó
er nýjasta afurðin hins vegar alls
konar handtöskur og töskur und-
ir farsíma. „Það er alltaf gaman
að prófa eitthvað nýtt,“ segir
Guðlaug sem er nýfarin að nota
skinn með öðrum efnum á tösk-
um og púðum og er það bæði
frumlegt og skemmtilegt.
Eitt af því sem nýlega hefur
vakið athygli flestra sem fara um
miðbæinn eru fínleg og falleg
gluggatjöld í gluggum veitinga-
hússins Apóteksins. Þau eru verk
Guðlaugar og það voru íslensk
fjallablóm sem hún notaði sem
fyrirmyndir að mynstrinu. Hún
notar einnig rósir, liljur og fjól-
ur, grænmeti og lauka. Verkstæð-
ið og galleríið er í sama húsnæð-
inu svo viðskiptavinir geta fylgst
með Guðlaugu og starfsmönnum
hennar við vinnu sína. Vekur það
ekki áhuga flestra? „Jú, það
kemur fyrir að fólk nefnir að því
finnist umhverfið skemmtilegt og
það er alltaf gaman að sjá hand-
verk verða til. Hins vegar er þetta
mjög þægilegt fyrir mig því ég get
unnið og afgreitt á sama tíma.“
Má mí mó verður tveggja ára
bráðum og þar er alltaf nóg um
að vera.
Guðlaug Halldórsclóttir
í IVlá uií mó.
Ma mi mo
10
Vikan