Vikan


Vikan - 05.09.2000, Page 28

Vikan - 05.09.2000, Page 28
Draugagangur á hóteli Ég fékk sumaruinnu í mót- töku stórs og fíns hotels öegar ég lauk stúdents- prófi og fannst ég hafa fengið bestu vinnu í heimi. íg var góð tungumála- manneskja og har sem stærstur hluti gestanna voru útlendingar fékk ég tækifæri til að nýta kunn- áttu mína og aðstoða gestina á ýmsan hátt. Það fylgir því viss „sjarmi“ að vinna á hóteli og þar er yfir- leitt alltaf nóg að gera, fólk að koma og fara og að leita upplýsinga um hitt og þetta. Mér fannst mjög gaman í vinnunni og var fljót að kom- ast inn í starfið. Þegar ég hafði unnið í um tvo mánuði á hót- elinu slasaði næturvörðurinn sig og þá var úr vöndu að ráða. Það var venjan að karl- maður sinnti starfinu en þeg- ar hótelstjórinn spurði mig hvort ég treysti mér til að leysa næturvörðinn af í nokkrar nætur fannst mér ég ekki geta neitað. í fyrsta lagi vildi ég ekki líta út fyrir að vera einhver skræfa sem þyrði ekki að vera ein í þessu stóra, gamla húsi og í öðru lagi vantaði mig sárlega auka- peninga til að nota um vetur- inn þegar ég hæfi háskóla- nám. Ókunnug hljóð og myrk- fælni Það var ekki laust við að ég kviði fyrstu nóttinni í nætur- varðarstarfinu, en mér fannst þetta allt saman dálítið spennandi líka og var upp með mér að vera treyst fyrir starfinu. Ég mætti því á fyrstu næturvaktina á miðnætti í miðri viku og fékk stutta leið- sögn um húsið þar sem mér var sýnt hvað ég ætti að gera. Auk hefðbundinnar skrif- stofuvinnu sem fólst meðal annars í skráningu gistinátta, uppgjöri og fleiru átti ég að fara nokkrar eftirlitsferðir um húsið, meðal annars niður í kjallara sem mér leist ekkert á. Ég lét þó ekki á neinu bera og veifaði glaðlega til starfs- fólksins sem yfirgaf húsið um og upp úr miðnætti. Ég hófst svo strax handa við að fylla út skýrslur og ann- að slíkt, bæði til að halda mér vakandi og einnig til að bæla örlítilli myrkfælni frá mér. Ég tel mig hvorki vera ímyndun- arveika né myrkfælna en það var allt öðruvísi að vera í hús- inu þarna um nóttina heldur en á daginn. Nú voru allir sof- andi og ég heyrði alls kyns ókunnug hljóð, brak og bresti sem ég hafði ekki heyrt áður. Ég passaði mig samt á því að láta ekki ímyndunaraflið hlaupa með mig í gönur og skammaði sjálfa mig í hljóði fyrir að vera svona mikið smábarn. Ég beit svo á jaxlinn og fór í eftirlitsferð niður í kjallar- ann sem var stór og dimmur. Hjartað sló örlítið hraðar en ég áminnti sjálfa mig um að ég væri nú orðin tvítug og ætti því að haga mér í samræmi við það. Ég var fegin þegar ég hafði lokið mínum verkum í kjall- aranum og flýtti mér upp á herbergisgangana til að at- huga hvort þar væri ekki allt eins og það ætti að vera. Kaldur gustur Það var allt með kyrrum kjörum á herbergisgöngun- um og hvergi sála á ferli. Ég var á leiðinni niður í móttök- una aftur þegar ég mundi allt í einu eftir því að ég hafði ekki farið upp á efstu hæðina. Ég sneri því við og tók lyftuna upp á efstu hæð. Þar var líka allt í stakasta lagi nema hvað mér varð alveg ískalt þegar ég gekk framhjá einu herberg- inu og ákvað því að fara nið- ur og skoða loftræstikerfið. Ég hef nú aldrei verið neitt sérstaklega tæknilega sinnuð og fann því ekkert athugavert þegar ég skoðaði kerfið og ákvað því að láta húsvörðinn kíkja á það þegar hann kæmi morguninn eftir. Ég hélt mig það sem eftir lifði nætur í móttökunni og var bara harla ánægð með sjálfa mig þegar starfsfólk móttökunnar fór að týnast inn um morguninn og ég gat sagt nokkuð drjúgindalega að það hefði nú ekki verið neitt mál að sjá ein um hótelið um nóttina. Ég lét svo húsvörð- inn vita af loftræstingunni, fékk mér morgunmat á hótel- inu og dreif mig heim í hátt- inn. Óvæntir gestir Næsta kvöld var ég talsvert léttstígari þegar ég gekk inn á hótelið því nú var ég farin að þekkja hljóðin í húsinu og vissi hvað ég átti að gera. Ég taldi því að nóttin myndi ganga átakalaust fyrir sig og tók meira að segja með mér bók að lesa, því ég hélt að ég yrði nógu afslöppuð til að sökkva mér niður í skáldsögu á milli eftirlitsferðanna og skýrslugerðanna. Mér skjátlaðist hrapallega, eins og síðar átti eftir að koma í ljós. Aldrei þessu vant var hót- elið ekki alveg fullbókað en ég bjóst ekki við að leigja nein herbergi út enda óvenjulegt að gestir bóki herbergi eftir miðnætti í miðri viku. En það óvænta gerðist, því laust fyrir klukkan eitt komu tveir menn inn, sennilega iðn- aðarmenn af klæðnaðinum að dæma, og pöntuðu her- bergi. Þetta voru feðgar, ósköp venjulegir menn á ferðlagi, faðirinn um sjötu^t og sonurinn um fimmtugt. Ég sá ekkert athugavert við að leigja mönnunum herbergi svona seint að nóttu til, þótt stundum þyki það grunsam- legt, enda voru þeir ákaflega kurteisir og virtust ekki lík- legir til vandræða. Mennirnir vildu fá eitt tveggja manna herbergi í stað tveggja eins manns herbergja 28 Vikan

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.