Vikan


Vikan - 05.09.2000, Page 38

Vikan - 05.09.2000, Page 38
Orkuuatn frá Clarins Eau Dynamisante er nýj ung frá Clarins sem byggö er á einstakri hugmynd, þ.e. aö sameina daglega notkun ilmvatns og ósviknaRh umhirðu líkamans einfaldlega með því að ^ setja ilm- og meðferðareiginleika plöntu- kjarna í eina vöru. Samvirkni nauðsynlegra olía og útvalinna plöntukjarna flytur ilm, raka og mýkir húðina um leið og það veit- ‘ j irferskleikatilfinningu og aukinn lífskraft. í'V Einstök tilfinning sem eykur heilbrigði bæði hugarog líkama. Eau Dynamisan te er auk þess frábær ilmur, frískandi^ styrkjandi, mótandi, rakagefandi^ og fyrir alla. Eau Dynamisante er ekki Ijósnæmur svo hann má nota í sól. Linamsolía og siampó í Eau Dynamisante línunni .^Útlit hársins endurspeglar ástand hár- *’■ '’svarðarins. Allar konur vita að heilbrigð : f húð tryggir skínandi, unglegt útlit og að sama skapi byggist gljáandi og heil- , brigt hár á ástandi hársvarðarins. Hárið1 þroskast og vex í hársekkjum í hársverði- num og því er mikilvægt að styrkja hann og_, verndasvo hárið haldi eiginleikum sínum. Clarins hef- ur þróað Re-Vital sjampóið til að tryggja heilbrigðan hársvörð. í því eru óblönduð sérvalin hráefni sem gefa hárinu og hársverðinum orku og næringu. Uppskrift- in inniheldur ilmkjarnaolíur sem eru gersemi plantn- anna. í Re-Vital erginsengsem styrkirog kemurjafn- vægi á hárið og hársvörðinn. Hveitiprótein sem styrkir ræturnar, B-5 vítamín sem kemur á jafnvægi og eykur raka, Clarins mengunarvarnarformúla sem ver hársvörðinn gegn sindurefnum og skað legum þáttum í umhverfinu, nauðsynlegar ilmolíur og náttúrulegur hreinsandi grunnur. Re-Vital er ekki bara sjampó heldur hármeðferð. Freyðibað með ilmkjarnaolíum UCVRUSÍ Nelson og Russell framleiða einstakar baðvörur með ilmkjarnaolíum. Freyðibað meö slakandi ilm- kjarnaolíum er kjörið þegar þarf að slaka á þreyttum, stífum vöðvum og slappa af eftir langan, erfiðan dag. Baðfroðan er blanda sedrusviðarolíu, kýprusviðarolíu og appel- sínutrjáaolíu sem mýkja vöövana, draga úr bólgum og draga úr verkjum. Ró- andi freyðibað er blanda af sandelvið, blágresi og appelsinutré. Þeim er ætlað að koma á jafnvægi hugar og líkama og hjálpa mönnum að slaka á meðan mildur ilmurinn fyllir skynfærin. Svo má vekja upp þrár og langanir líkamans með seið- t andi ilmi Sensual freyðibaðsins. Þar færðu blöndu af patchouli, ylang ylang og appelsínutré. Þessi blanda hjálpar líkamanum að slaka á en vekur jafnframt Mhlýjar tilfinningar sem eru einstaklega góð undirstaða ef ætlunin er að eiga rómantískt kvöld heima. Frá Nelson og Russell má einnig fá baðgel með ilm- , kjarnaolíum sem vekja, hressa og hreinsa. Þar eru blöndur eins og sitrónuol- ía, Frankincence, mynta, lavender, límóna og rósmarín algengar en Nelson og Russell gefa fólki einnig færi á að búa til sínar eigin blöndur því kaupa má ilm- kjarnaolíur í litlum glösum frá þeim. Ilmkjarnaolíumeöferð er löngu viður- -3 kennd sem áhrifarík leið til að bæta liðan sína með einföldum, áhrifaríkum en jafnframt ánægjulegum hætti. 38 Vikan

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.