Vikan


Vikan - 05.09.2000, Blaðsíða 44

Vikan - 05.09.2000, Blaðsíða 44
iasti kafli Marc hafði birst rétt áður en Annie fór á sviðið. Annie fann hvernig lifnaði yfir henni. Hún hafði verið þreytt og nið- urdregin og varla getað hugs- að sér að koma fram. Um leið og hún sá hann tók hjarta hennar kipp og græn augun ljómuðu þegar hann brosti til hennar. „Ég skal fylgja henni að sviðinu," sagði hann við Phil og Dí. Þau litu á Annie en hún tók ekki eftir því, það eina sem hún sá var Marc. Mótmælin dóu á vörum þeirra. Þau kysstu hana og óskuðu henni góðs gengis. Hún smeygði sér í fang hans um leið og þau voru komin út úr dyrunum. „Saknaðir þú mín?“ Hún þurfti ekki að svara. Hann vissi hvernig henni leið. Hún þrýsti sér að honum og Marc settist með hana í fang- inu á litla sófann í búningsher- berginu og kyssti hana. Á þessari stundu átti hún auðvelt með að gleyma dekkri hliðinni á sambandi þeirra, draumunum, fortíðinni. Nú- tíðin var það eina sem skipti máli þetta augnablik í faðmi hans. „Syngdu fyrir mig einan í kvöld,“ hafði hann hvíslaði. Og það var það sem hún gerði. Hún söng af svo mikilli til- finningu að strákarnir í hljóm- sveitinni horfðu á hana í for- undran og áhorfendur slepptu algjörlega fram af sér beislinu. Þetta voru bestu tónleikar sem hún hafði nokkru sinni haldið. Eftir tónleikana var hún með tárin í augunum, allir vildu faðma hana að sér en hún sá engan nema Marc. Hún neyddist til að mæta í enn eina veisluna og hún þráði Marc allan tímann. Aftur var það hann sem fylgdi henni úr veislunni. Núna voru allir farnir að gera sér grein fyrir sambandi þeirra. Strákarnir í hljóm- sveitinni komu með alls kyns athugasemdir og glottu til hennar en bara þegar Marc var ekki viðstaddur. Þeir voru hálf taugaóstyrkir í návist hans. Díana sagði loksins það sem henni lá á hjarta. „Er eitt- hvað alvarlegt á milli ykkar?“ spurði hún hikandi. Ég spyr vegna þess að hann er töluvert eldri en þú og hann er... hann er franskur.“ Annie hló. „Hvað meinar þú með því? Auðvitað er hann franskur en hvaða máli skiptir það? Ég er sjálf hálf- frönsk. Dí varð hissa, hún virtist al- veg hafa gleymt þeirri stað- reynd. „Já, það er rétt, ég var búin að gleyma því. En þú hefur aldrei búið í Frakklandi og-“ „Það breytir því ekki að ég er að hálfu frakki. Þar fyrir utan er Marc er aðeins tíu árum eldri en ég. Það er alls ekki svomikill aldursmunur.“ „En maður eins og hann hlýtur að hafa átt í mörgum ástarævintýrum." „Ég veit allt um fortíð hans,“ sagði Annie ákveðin. „Þú yrðir hissa ef þú vissir hvað ég veit mikið um hann.“ Mjög hissa, hugsaði hún áhyggjufull með sjálfri sér. „Þú hefur engar sannanir fyrir því að hann hafi sagt þér allt sem skiptir máli!“ sagði Díana pirruð. „Þú hefur lifað mjög vernduðu lífi og ég ef- ast um að þú ráðir við að vera í sambandi við mann eins og hann.“ ,Mér fer fram,“ sagði Annie. Allt í einu fannst henni þessar umræður fáránlegar og gat ekki stillt sig um að skella upp úr. „Dí, ég er tuttugu og fjögurra ára gömul! Það er kominn tími til að ég fái að gera mín eigin mistök í friði.“ Diana vissi ekki hvað hún átti að segja. „Þú ert allt í einu svo breytt. Frá því við komum úr brúðkaupsferðinni...“ Hún þagnaði og virti Annie fyrir sér alvarleg í bragði. „Annie, tókstu það nokkuð nærri þér að við Phil skyldum gifta okk- ur?“ Annie hafði gert það, en nú var það eins og aftan úr grárri fornöld. Það skipti hana engu máli lengur. Hún hristi höfuð- ið ogbrosti til Dí. „Ég ermjög hamingjusöm fyrir ykkar hönd, ég sé að þið eruð ánægð saman og það er frábært. Auðvitað breytti það ýmsu en ég held að það hafi verið kom- inn tími til þess að gera ýms- ar breytingar. Þið gættuð mín svo vel að ég kunni ekki að hugsa sjálfstæða hugsun. Nú er ég að uppgötva ýmislegt um sjálfa mig sem ég hafði ekki hugmynd um.“ Díana virtist ekki alveg sannfærð en henni tókst að brosa á móti. „Það er gott, Annie, en lofaðu mér að fara gætilega. Marc Pascal er lífs- reyndur maður en það sama verður ekki sagt um þig. Við viljum ekki að þú verðir fyrir vonbrigðum. Kannski Phil ætti að tala við hann, athuga fortíð hans og ganga úr skugga um það að hann sé ekki giftur!" „Hann er ekki giftur,“ sagði Annie með áherslu. Díana sendi henni skrítið augnaráð. „Annie, það getur vel verið að hann hafi sagt það en hann gæti verið að segja ósatt. Þú ert nýbúin að kynn- ast honum og veist ekki hvort þér er óhætt að treysta hon- um. Þú hefur aftur á móti þekkt Phil í mörg ár og veist að þú getur treyst honum." „Já,“ svaraði Annie, ekki alveg eins örugg með sig. „Leyfðu Phil að grennslast fyrir um hann,“ sagði Díana biðjandi. „Það er aldrei hægt að vera of varkár.“ Annie hikaði en kinkaði svo kolli. „Gott og vel.“ Hún var vön að láta Phil sjá um allt og treysti honum. En hún gerði sér grein fyrir því að hún hafði breyst mikið undan- farnar vikur og orðið sjálf- stæðari eftir að hún kynntist Marc. Hún velti því fyrir sér hvort hann einn hefði haft þessi áhrif á hana. „Ekki láta hann koma upp á milli okkar,“ sagði Díana biðjandi. „Þú hefur unnið með Phil í öll þessi ár og það er óréttlátt að láta ókunnugan mann koma upp á milli ykk- ar einmitt núna þegar allt bendir til að þú sért að öðlast heimsfrægð." „Ég myndi aldrei gera það,“ sagði Annie. „Marc gerir allt sem hann getur til að komast upp á milli ykkar,“ sagði Díana stuttara- lega. „Hann er enginn bjáni. Um leið og þú ert orðin heimsfræg rakar þú inn millj- ónum. Ég er viss um að í hans huga sakar það ekki.“ „Marc er alls ekki þannig!“ mótmælti Annie. „Þú getur ekki verið viss um það,“ sagði Dí. Það var rétt. Hún hafði aðeins þekkt Marc í nokkra daga. Hafði Díana rétt fyrir sér? Hafði hann bara áhuga á peningunum hennar? „Haltu honum í fjarlægð þar til Phil er búinn að grennslast fyrir um hann,“ sagði Díana biðjandi. Annie kinkaði kolli treglega. „Gott og vel. Við erum hvort sem er að fara frá Frakklandi. Ég efast um að ég komi til með að sjá mikið til hans á næstunni." Phil hringdi í nokkra aðila. „Það lítur út fyrir að Marc sé heiðarlegur og feli enga drauga í fataskápnum. En við 44 Vikan
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.