Vikan


Vikan - 05.09.2000, Side 49

Vikan - 05.09.2000, Side 49
launsir eru notaðar þá finnur fólk að það ræður betur við ágreiningsefnin og tekur því ekki eins alvarlega þegar þau skjóta upp kollinum. Þannig fær fólk smám saman meira sjálfstraust í sambúðinni sem eykur á ánægju beggja og full- nægju í sambandinu. Það er oft mjög gott að takast á við ágreiningsefnin þegar fólki líður vel og það er laust við spennu. Þá er fólk iðulega skilningsríkara og hlustar betur og þannig er hægt að fyrirbyggja síðari deilur. Sum hjón sem aldrei geta rætt saman heima hjá sér án þess að fara að rífast hafa gripið til þess ráðs með góð- um árangri að fara ein út að borða á notalegum stað, þar sem minni líkur eru á að þau fari í hár saman á opinberum stöðum. Jákvæðar og neikvæðar leiðir Þið hafið bæði þarfir og þrár og þær geta verið ólíkar. Þið viljið bæði að á ykkur sé hlustað og gerið kröfu um að mæta skilningi. Ykkur líður báðum illa þegar þið rífist. Þið getið haft mikil áhrif á hvort þið leysið ágreining ykkar á jákvæðan eða nei- kvæðan hátt. vvm. mi .l-,j Jákvæðar leiðir Þú ert jákvæö/ur. Þú gerir þér grein fyrir hvað gengur á þegar þiö rífist og ert fær um að koma ágreiningsefnum í jákvæðan farveg. Þú reynir meðvitað að hugsa jákvætt til hins aðilans.Þú tjáir tilfinningar þínar á þann hátt að það særi ekki liinn aðilann. Þú sýnir bæði tilfinningum og sjónarhorni hins aðilans skilning og þið finniö bæði að þið mætið skilningi. Þið eruð bæði meðvituð um hvað þið viljið og trúið því að þið eigið rétt á að hafa þennan vilja. Þið eigið því auðvelt með að skýra skilmerkilega út fyrir hinum aðilanum hvað þið viljiö svo hann eigi þess kost á að koma til móts við ykkur. Þið hafiö sameiginlegt markmið sem er að reyna að komast að lausn sem þið getið bæði sætt ykkur við, þannig að hvorugur aðilinn tapar. Að lokum finnst ykkur báðum sem þið hafið fengið mest af því sem þið vilduð, ef ekki allt. Deiluefnið er því leyst Þið hafið bæði öölast betra innsæi hvað varðar ykkur sjálf og hinn aðilann. Ykkur líður vel og finnst sambandið vera sterkt. Þið eruð vongóð um fram- tíðina. Þiö munið smám saman verða leiknari í að leysa ágreiningsefni á jákvæð- an hátt. Neíkvæðar leiðir Þú leyfir sárum tilfinningum aö ná tökum á þér og finnur fyrir kvíða og hræðslu. Þú gerir þér ekki grein fyrir hvað gengur á þegar þið rífist og sýnir annað hvort yfirgang eða ferð í vörn til þess að losna við rifrildi. Þú ert gagnrýninn á hinn aðilann og reynir ekki að stöðva þær hugsanir. Þú tjáir tilfininningar á þann hátt aö það særi örugglega hinn aðilann eða þú neitar að tjá þig um hvernig þér líður til þess að láta hinum líða illa. Það er í raun engin virk hlustun í gangi og ykkur finnst þið bæði vera mis- skilinn og jafnvel misboðið. Hvorugt ykkar er raunverulega meðvitað um hvað þið viljið eða trúið ekki að þið hafið rétt á að vilja það. Þið eigið þvi í erfiöleikum með aö skýra skilmerkilega frá því sem viljið. Þið hafið ekkert sameiginlegt markmið. Annað ykkar kann að vilja fá sínu framgengt, hafa síðasta orðið eða forðast rifrildi eins og heitan eldinn og láta því strax í minni pokann. Að lokum hafið þið hvorugt fengið það sem þið vilduð eða að annaö ykk- ar fær sínu framgengt og hitt er fullt gremju. Deiluefnið er enn óleyst. Allt virðist verra en áður. Ekkert hefur batnaö. Rifrildið hefur aðeins bætt á sambúðarvanda ykkar. Þið rífist oftar og meira. Vikan 49

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.