Vikan


Vikan - 05.09.2000, Side 57

Vikan - 05.09.2000, Side 57
eru komnir í ágætt starf. Þetta fólk treystir á að kostir þess verði metnir af verðleikum og að vinnuveitandi muni taka vel eftir stundvísi þeirra og samviskusemi. í sumum til- fellum er það svo en á stór- um vinnustað er oft ákaflega erfitt að fylgjast með öllum og sjaldnast taka yfirmenn eftir öðrum en þeim sem gera mis- tök. Þegar þannig háttar til verður fólk sjálft að sjá til þess að störf þeirra séu metin og eftir þeim tekið. Þetta kann að vera hægara sagt en gjört í huga þeirra sem eru að eðl- isfari uppburðarlitlir og feimnir en ekkert er óvinn- andi vegur. Hér á eftir koma nokkur góð ráð um hvernig vekja má athygli vinnuveit- ands á því sem maður er að gera vel. 1. Þegar haldnir eru fundir með starfsfólkinu er sjálf- sagt að láta skoðanir sínar í ljós og benda á það sem betur má fara bæði í starfi og umgengni innan fyrir- tækisins. Yfirmenn heyra þá að viðkomandi starfs- maður fylgist með og hef- ur áhuga á að bæta ímynd fyrirtækisins. Ástæðulaust er að vera með málaleng- ingar eða gera mikið úr hlutunum, mun betra er að vera stuttorður og gagn- orður og alls ekki ásaka einhvern einn. Tilgangur- inn er eftir allt saman ekki að koma af stað leiðindum heldur vekja athygli á ein- hverju sem betur má fara. 2. Þegar fólk er farið að kom- ast inn í starf sitt uppgötv- ar það oft að með því að gera hlutina á annan hátt má spara tíma og gera sitt- hvað sjálfum sér til hag- ræðis. I stað þess að gera hlutina einfaldlega þannig er ágætt að ræða fyrst við yfirmanninn um hvað þú telur að betur megi fara. Hann veit þá að þú hefur áhuga á starfinu, hefur ágætt verksvit og vinnur ekki hugsunarlaust eftir skipunum. 3. í kaffi- og matartímum skaltu gefa þig jafnt að yf- irmanninum sem öðrum samstarfsmönnum. Það hjálpar meira en nokkurn grunar að eiga þannig sam- band við yfirmann sinn að maður geti auðveldlega spjallað við hann þegar á þarf að halda. 4. Sýndu frumkvæði. Það er tæplega hægt að hugsa sér verðmætari starfskraft en þann sem ekki þarf að segja allt. Sá sem af eigin frumkvæði tekur sér fyrir hendur og gerir það sem þarf verður alltaf mikils- metinn. Taktu eftir hvort geymslan í fyrirtækinu er illa skipulögð og full af drasli. Ef svo er byrjaðu þá að laga til að eigin frum- kvæði og gerðu það smátt og smátt meðan lítið er að gera við þín venjubundnu störf. Sama er að segja um hillur, skúffur eða eitthvað annað innan fyrirtækisins sem þú sérð að þyrfti að betrumbæta. 5. Reyndu að vera sjálfstæð- ur í vinnubrögðum og fyrst á meðan þú ert að læra starfið skaltu skrifa hjá þér allt sem þú þarft að muna. Safnaðu saman í litla hand- bók upplýsingum um allt sem þú þarft að muna, skipanir á tölvunni, röð á pappírum, hvað sé geymt hvar o.s.frv. Handbókina getur þú notað þangað til þú ert búinn að ná fullu valdi á starfinu og hún er sömuleiðis ómetanleg síð- ar til að fara yfir ýmislegt til frekari glöggvunar. Vikan 57

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.