Vikan - 05.09.2000, Blaðsíða 63
Illlamman
Spá Vikunnar
%
4^
**
Hrúturinn
21. mars - 20. apríl
Þú átt mjög auðvelt með að umgangast fólk
og hefur góða hæfileika til að sætta menn
núna. Þér líður mjög vel félagslega og nú
ættir þú að huga að líkamlegu heilbrigði þínu, þú ert í
góðri aðstöðu til að breyta því þér í hag.
Nautið
21. apríl - 21. maí
Þú ert loksins farin(n) að sjá út úr göngun-
um sem þú hefur verið í lengi. Bjartari tímar
eru fram undan í september en í ágúst og
þú skalt fara að hlakka til.
Tuíburinn
22. maí - 21. júní
Þú átt eftir að breyta heimili þínu mikið í
þessum mánuði og þú byrjar að skipuleggja
það í þessari viku. Þú ert mjög róleg(ur)
núna og lætur ekki koma þér úr jafnvægi.
Krabbinn
22. júní - 23. júlf
Loksins finnst þér þú geta um frjálst höfuð
strokið eftir mikið vesen í bönkum eða við
opinberar stofnanir. Þú getur átt góða helgi í
vændum, sérstaklega ef þú velur góðan félagsskap.
Ljónið
24. júlí - 23. ágúst
Mörg Ijón eignast einhverja peninga óvænt
og gleðjast mikið. Önnur fá annars konar
gjöf. Englarnir standa við hlið þér núna!
Meyjan
24. ágúst - 23. september
Tækifærin skjóta upp kollinum alls staðar í
kringum þig núna! Þú gætir að vísu þurft að
hafa svolítið fyrir því að nýta þér þau, en
það er svo sannarlega vel þess virði. Taktu sjénsinn!
Vogin
24. september - 23. október
Loksins, loksins fer að birta til í ástamálum
voganna! September verður sérstaklega
spennandi fyrir alla sem geta á annað borð
hugsað sér að vera ástfangnir. Spenntu beltin!
Sporðdrekinn
24. október - 22. nóvember
Nú er kominn tími til að sinna vinum og ætt-
ingjum og leyfa þeim að sinna þér. Þú ert að
„mýkjast upp“ og munt njóta þess fram í fing-
urgóma að finna að þú ert elskuð(aður).
Bogmaðurinn
23. nóvember - 21. desember
Hugsaðu stórt núna. Þú skalt ekki vera
smeyk(ur) við að taka að þér stór verkefni
eða mikla vinnu, þú ræður vel við það. Þú
hefur ekki aðeins líkamlegan styrk heldur ert þú að eflast
andlega.
*
ák
Steingeitin
22. desember - 20. janúar
Tíminn hefur flogið frá þér síðastliðna viku
og þú ert hálfringluð(aður). Nú mun tilveran
fara að hægja á sér og þú getur farið að
sinna áhugamálum þínum og vinum eins og þú helst vild-
ir.
Vatnsberinn
21. janúar - 19. febrúar
Láttu ekki skapið hlaupa með þig í gönur!
Margir vatnsberar eru heldur tæpir á taugum
þessa dagana og þreyttir eftir erfiða tíma en
nú fer þetta allt að lagast. Þessi vika verður betri en sú
síðasta og svo koll af kolli þennan mánuð.
Fiskarnír
20. febrúar - 20. mars
Þú ert farin(n) að njóta uppskerunnar af því
sem þú sáðir. Þessi vika verður þer góð en
þú ættir að nota hana til hvíldar. Ástin
blómstrar hjá fiskunum og þeir eru rómantískari en
nokkru sinni fyrr.