Menntamál - 01.02.1927, Side 19

Menntamál - 01.02.1927, Side 19
MENTAMÁL 67 Þ o 1 g æ ð i ð hlómgastj við aö sökkva sjer niður í viö- fangsefni aö sta'Saldri. Af þessu sjest, aö sjálfsstarf er nauSsynlegt. En starfslöng- unin er klipt sundur meö sauöaklippum frímínútnanna, oft þegar áhuginn er mestur og barniS starfar í algleymingi. Þetta er uppeldisfræöisleg synd. Frimínútur eru því a'ö eins nauösynlegar, aö þær komi, þegar þeirra er þörf. Börnin eiga aö ákveöa sjálf, hvort skift er uin námsefnin í tímunum, en jafnframt reynir kennarinn aö vita vilja þeirra, sjá þaö á þeim. Frjáls eftirliking getur veriö góö. Þannig læra þau máliö. Börnin flokkast oft um námsefni, fá aö tala um |)aö og hreyfa sig eftir vild, en mega þó eigi trufla starfs- systkini sín viö önnur störf. Þá er kennarans aö grípa inn í. Hjer eru háværar raddir tfm frelsi og jafnrjetti. En einhver spyr: Hvenær má krefjast ákveöins vinnutíma og frítíma af börnunum ? Ef skyldutilfinningin hefir þroskast meö eöli- legum hætti, kemur hún til aö stjórna vinnunni. Barniö viröir innri skyldur. En andstæöingar vorir segja: Hvað sem frels- inu líöur, veröa börriin aö vita og skilja, aö til er eitt í heim- inum, sem heitir skylda. Þaö er eins og menn haldi, að frelsi og skylda geti ekki átt samleið. Sagt er, aö maðurinn hafi skyldur viö guö, sjálfan sig- og’ náungann. Skyldurnar viö guð og sjálfan mann falla saman. Það eru hinar innri skyldur, er standa i sambandi viö innri þarfir einstaklingsins. Skyldurnar við náungann vita að hin- um ytra heimi. Þaö eru hinar ytri skyldur. Rjettlætið krefst ]>ess, að tekiö sje tillit til annara. Frelsi mannsins nær þang- aö, sem kröfur náungans byrja. Hinar innri skyldur eru fleiri en ]iær ytri. Skyldan má aldrei vera neinum plága eða ok. heldur eðlileg afleiöing af innri ákvörðun. Hver beygir knje sín dýpra en eiginn vilji viöurkennir? Barniö er ekki frekar en sá fullorðni borið til að ])jóna eða ])rælka eftir ytra boði. En ])egar vitunartími þess er korninn og skyldurækni þess vaknar, mun þaö þjóna samkvæmt eðli sínu og getu. Gefur þaö beztan ávöxt og ánægju. Það er hægt að vekja skyldu-

x

Menntamál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.