Menntamál - 01.02.1927, Síða 20
68
MENTAMÁL
rækni barnsins og' leiöa hana á þroskabraut. Þetta er hlut-
verk skóla og heimila. Börnunum er oft þröngvaS til hlýSni
meö þrælsótta, i staöinn fyrir a'ö leiöa þau til hlýöni, meö
þvi aö vekja og uppala skyldutilfinningar þeirra. ,/Ytxi nauö-
ung er koddi samvizkunnar".
Hjer á árunum voru ungbörnin þjettvafin í reifar, svo aö
þau gátu hvorki hreyft legg nje liö. Segja má, aö þetta sje
enn þannig í skólum, aö vísu á annan hátt. Nýi skólinn vill
vefja reifarnar af barninu, láta kennarann vera meöal þeirra,
síleiöandi og siskapandi. Barniö ti aö vinna sjálft, því aö
vöxtur vits og annara sálargáfna liggur um hendurnar. —
Heróp nýja skólans er gamla krafan um frelsi og jafnrjetti.
Þaö, sem beztu menn mannkynsins hefir dreymt um og viö
viljum reyna aö gera aö veruleika. Eitthvaö á þessa leið var
andinn í ræöu Egebergs.
Glode Olsen, kennari i tilraunabekkjunum í Vanlöse-
skóla, talaði um hagnýtingu skólanýjuuganna.
í Vanlöse-skóla eru smábörnin í tilraunabekkjunum í fjög-
ur ár, frá 6—io ára aldri (i.—4. bekkur). Þar eru kenningar
þær, er Egeberg, kennari, skýröi frá, teknar i þjónustu reynsl-
unnar. Ber alt þess svip. Skólastofan er eins og heimili. Mynd-
ir eru á veggjum, blóm á borðum, gefin af foreldrum. Borö
og stólar eins og boröstofuhúsgögn, viö barna hæfi. Skúffur
í boröunum fyrir hvert barn og blekbyttur á boröunum, sem
hægt er að loka. Hjer um bil átta börn geta setið við hvert borð,
— alt í kring um það. Kallast þaö fjölskylda (Familie). Kenn-
arinn hefir vanalegt borð. Töflur eru á öllum veggjum, í hæfi-
legri hæö (um 1 m.). Hillur eru yfir töflunum og þar geymt
ýmislegt, sem börnin hafa gert. Á veggnum hangir póstkassi
og klukka, stórt dagatal og sparikassi.
Efniö er margvíslegt: Smíðaborð með allskonar smiöatólum,
leir til að móta úr, bast til aö búa til ýms áhöld, pappír til að
klippa, band til að prjóna, efni til að sauma, ritblý og litkrít,
því að þarna er skrifað og krítað liöugt.
Montessori-áhöld og önnur, þau er hafa gerö verið í Dan-