Menntamál - 01.02.1946, Qupperneq 5

Menntamál - 01.02.1946, Qupperneq 5
MENNTAMÁL XIX., 1. JAN.—FEBR. 1946. SÉRA SVEINN VÍKINGUR: Karl Finnbogason skólastjóri Þegar þjóðin á að meta ævistörf einstakra sona sinna og dætra, er eðlN legt að hún líti fyrst o0- fremst á þá hliðina, sem að henni veit, og meti starfið eftir því, hvert gildi það hefur haft fyrir þjóðarheildina. Af þessu sjónarmiði leiðir það, að sagan geymir jafnan nöfn þeirra, sem skipað hafa æðstu og ábyrgðar- mestu stöður með þjóð- inni, og það jafnvel þótt þeir hafi á engan hátt skarað fram úr öðrum eða reynzt neinir afburða- menn. En vegna stöðu þeirra innan þjóðfélagsins hlutu athafnir þeirra eða athafnaleysi að marka sín auðsæu spor í þjóðlífið. Hlutskipti fjöldans er og hefur aftur á móti verið það að gleymast undir grænni torfu nema því aðeins, að þeir hafi unnið einhver þau afrek, sem af báru. Afrek sumra manna eru þannig vaxin, að auðvelt e'r Karl Finnbogason.

x

Menntamál

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.