Menntamál - 01.02.1946, Qupperneq 11
MENNTAMÁL
7
PÁLL STEFÁNSSON Á ÁSÓLFSSTÖÐUM:
Heimavistarskóli
°g byggðin í sveitinni
(í erindi, sem Stefán Jónssori
námsstjóri flutti í útvarpið 8.
júní s.l., las hann upp kafla úr
bréfi frá Páli Stefánssyni á Ás-
ólfsstöðum. Ritstjóra Mennta-
mála jiótti sá bréfkafli vel eiga
heima á síðum tímaritsins, og
hafa hlutaðeigendur góðfúslega
leyft birtingu hans hér á eftir.
Höfundurinn, Páll Stefánsson
bóndi á Ásólfsstöðum f Þjórsár-
dal, er nú kominn fast að sjö-
tugu (f. 16. des. 1876), en trú
lians á æskuna og framtíð þjóð-
arinnar er óbiluð. Páll hefur
lengi verið forystumaður í marg-
víslegum málefnum sveitar sinn-
ar og átti meðal annars mikinn
jiátt í, að heimavistarskólinn í
Gnúpverjahreppi var byggður.)
Páll Stefánsson.
Það hefur oft hvarflað um hug minn nú um skeið á
þessum reikulu og hverfulu tímum, hverju Gnúpverjar
muni eiga það að þakka, hvað æskulýður sveitarinnar er
tiltölulega heimaelskur, miðað við það, sem á sér stað víða
annars staðar.
Það er kunnara en frá þurfi að segja, að í ýmsum
byggðarlögum þessa lands er nú svo högum háttað, að