Menntamál - 01.02.1946, Page 17

Menntamál - 01.02.1946, Page 17
MENNTAMÁL 13 esperantó, getur haft nóg að lesa af ódýrum og skemmti- legum bókum og blöðum, en miðað við verð íslenzkra bóka eins og það er nú, eru bækur á esperantó mjög ódýrar, einnig þær, sem gefnar voru út á stríðsárunum. Ég á nú t. d. um 70 bækur og bæklinga á esperantó. Flestar þeirra hef ég fengið frá Bretlandi undanfarin stríðsár, en innan skamms vona ég að fá um 30 bækur frá Svíþjóð, allar á esperantó, en eins og kunnugt er var erfitt að fá vörur þaðan á stríðsárunum. Mér er kunnugt um 30—40 esper- antó-blöð og tímarit, sem gefin eru út víðs vegar um heim. Mörg þeirra eru skrifuð eingöngu á esperantó, en nokkur eru skrifuð á tveimur málum, þ. e. esperantó og þjóðtungu viðkomandi lands. Er þá um að ræða blöð, sem gefin eru út í þeim tilgangi að útbreiða alþjóðamálið og hugsjónir þær, sem esperantistar berjast fyrir, meðal manna, sem ekki kunna málið. í slíkum blöðum er oftast um helmingur lesmálsins á esperantó. I öðru lagi eru að minnsta kosti tíu útvarpsstöðvar, sem útvarpa á esperantó, og birtist skrá um þær, bylgjulengdir þeirra og á hvaða tímum þær útvarpa á esperantó í síð- asta tölublaði af Esperanto Internacia, sem er málgagn Alþjóða esperantó-sambandsins. Og það er fyrir löngu viðurkennt af öllum, sem til þekkja, að mjög gott er að skilja esperantó í útvarp. Þá má hafa mikið gagn af esperantó á ferðalögum er- lendis, með því að hafa samband við esperantista í lönd- um þeim, sem viðkomandi ætlar' sér að ferðast um, en það er mjög auðvelt fyrir meðlimi Alþjóða esperantósam- bandsins að vita, hvar í viðkomandi landi hann getur hitt esperantista, því að í árbók þess birtist alltaf mjög ýtar- leg skrá yfir fulltrúa þess víðs vegar um heim. í árbók þess frá árinu 1945, en hún var prentuð, áður en styrjöld- inni lauk, er skrá yfir 820 fulltrúa í 31 landi. Ég tel, að auðvelt sá fyrir esperantista, sem ferðast erlendis, að ,,bjarga sér“ í því nær öllum menningarlöndum heims.

x

Menntamál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.