Menntamál - 01.02.1946, Page 20

Menntamál - 01.02.1946, Page 20
16 MENNTAMÁL aðalmarkmið alþjóðamáls á að vera að vekja samúð og skilning með þjóðunum. En esperantó er hins vegar hlut- laust; það er ekki séreign nokkurrar þjóðar, heldur stefnir að því að verða sameign allra þjóða. Um innleiðing þess ættu því allar þjóðir að geta sameinazt. 2) Málfræði þjóðtungnanna er oftast mjög flókin, og er fjöldi undantekninga frá málfræðireglunum. Málfræð- in í esperantó er hins vegar skýrari og einfaldari en mál- fræði nokkurrar þjóðtungu. Engar undantekningar eru til frá málfræðireglum þess. 3) Stafsetning þjóðtungna er oft mjög flókin og styðst eigi allsjaldan við margra alda gamlar reglur, og verður því stafsetningin oft frábrugðin framburðinum. En í esperantó fer stafsetningin alltaf nákvæmlega eftir fram- burðinum, enda táknar hver stafur alltaf sama hljóð, hvar í orði sem hann stendur. 4) Áherzlan í esperantó hvílir alltaf á sama stað (á næstsíðustu samstöfu orðsins). Það er skýrt í framburði og hljómfagurt, en það er meira en sagt verður um marg- ar af þjóðtungunum. 5) Orðaforði í esperantó er mjög auðlærður, einkum fyrir Vestur-Evrópumenn. Hann er samsettur af alþekkt- um orðstofnum úr Evrópumálunum. Mynda má á mjög einfaldan hátt næstum ótakmarkaðan fjölda orða úr orð- stofnunum með hjálp forskeyta og viðskeyta. Þetta fækkar að miklum mun þeim orðstofnafjölda, sem læra þarf sér- staklega. 6) Esperantó tjáir hvaða hugsun sem er og stendur í því efni jafnfætis hvaða þjóðtungu sem er, eins og hinar blómlegu bókmenntir þess bera gleggst vitni um. Eins og mörgum er kunnugt, hafa allmörg svonefnd „alþjóðamál" verið búin til, og sýnir það, að ýmsum fleir- um en dr. Zamenhof, höfundi esperantós, hefur verið það ljóst, að þjóðtunga verður ekki innleidd sem alþjóðamál, heldur aðeins hlutlaust mál. Én af þessum tilbúnu málum

x

Menntamál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.