Menntamál - 01.12.1946, Side 27
MENNTAMÁL
161
vænta til að byrja með. En Benedikt átti þá bjartsýni,
stórhug og dugnað, sem til þess útheimtist að hrinda þessu
máli fram, þótt örðugleikar væru margir.
Lítið mun skólinn hafa
gefið í aðra hönd sam-
kvæmt framansögðu, enda
fyrst og fremst stofnaður
til þess að efla andlega
menningu héraðsins og
svala að einhverju leyti
fróðleiksþorsta þingeyskr-
ar æsku. Benedikt varð því
að vinna hörðum höndum
hvert sumar til að sjá sér
og sínum farborða. En
veganestið, sem hann veitti
nemendum sínum, var
gott. Það var ekki aðeins
aukin þekking í ýmsum
námsgreinum, heldur fyrst
og fremst ást til sögu og
tungu þjóðarinnar, trúin á landið og þann kynstofn,
er það byggir, og þráin til þess að reynast drengir góð-
ir, jafnan reiðubúnir til að leggja hverju góðu máli lið.
Skóli Benedikts hlaut þegar gott orð, og nemendur
streymdu að honum úr nærliggjandi sveitum, — yfirleitt
þroskaðir nemendur, er fært gátu sér í nyt og skilið við-
leitni hins ágæta kennara til að auka þekkingu þeirra og
manngildi.
Benedikt rak skólann fyrir sjálfs sín reikning til árs-
ins 1914. Þá gerðist hann skólastjóri barnaskólans í Húsa-
vík. Jafnframt hélt hann þó áfram að vera skólastjóri
unglingaskólans, en Húsavíkurhreppur tók við fjárreið-
um skólans og sá honum fyrir húsnæði, enda hafði ungl-
ingaskólinn haft aðsetur í barnaskólahúsinu eftir að það
Benedikt Björnsson.