Menntamál - 01.12.1946, Side 30
164
MENNTAMÁL
því að veturinn 1917—1918 féll skólahald niður, mest
vegna eldsneytisskorts. Er ráðgert, að þá brottskrái
skólinn fyrstu gagnfræðingana, og verður þess afmælis
væntanlega minnzt ræki-
lega hér á staðnum, þegar
þar að kemur.
Þegar spurt er um á-
rangurinn af starfi þessa
skóla um 40 ára skeið, er
ekki auðvelt að benda á
hann í tölum, krónum eða
öðrum efniskenndum hlut-
um, en slíkt mun mega
segja um flesta þá skóla,
sem ekki kenna sérgrein-
ar eða útskrifa menn til
ákveðinna starfa. En víst
er um það, að stofnun
skólans var menningarlegt
afrek á sínum tíma, þegar
allar aðstæður eru metn-
ar. Og óhætt er að fullyrða, að margur unglingurinn fór
frá skólanum meiri og betri maður en hann kom þangað.
Gætu margir þeirra tekið undir eftirfarandi ljóðlínur,
en þær standa í kvæði, sem einn af nemendur Benedikts
orti um_ hann látinn:
Heillandi, áfeng hreif mig kennsla þín.
Hugsjónaeld þinn geymdi sála mín.
— Við fráfall Benedikts stofnuðu nokkrir af nemendum
hans og vinum sjóð til minningar um hann. Ber sjóðurinn
nafn Benedikts, og verður fé varið úr honum til að verð-
launa nemendur gagnfræðaskólans fyrir sérstaklega góða
frammistöðu í íslenzkum fræðum, en íslenzk saga og tunga
Axel Benediktsson.